Fjölbreytt starfstengd námskeið og tómstundanámskeið í boði á vorönn við utanverðan Eyjafjörð

Mörg áhugaverð námskeið verða í boði hjá SÍMEY á vorönn - bæði á Akureyri og við utanverðan Eyjafjör…
Mörg áhugaverð námskeið verða í boði hjá SÍMEY á vorönn - bæði á Akureyri og við utanverðan Eyjafjörð.

Núna á vorönn verða mörg áhugaverð námskeið í boði á vegum SÍMEY í Dalvíkurbyggð og Fjallabyggð – til viðbótar við íslenskunámskeið á Dalvík og í Ólafsfirði. Um er að ræða bæði fjögur starfstengd námskeið og þrjú tómstundanámskeið. Skráning er hafin á öll þessi námskeið, sem eru unnin og boðið upp á í samstarfi við Einingu-Iðju, Kjöl og Sameyki. Fyrsta námskeiðið verður haldið í næstu viku, 6. febrúar.

Starfstengdu námskeiðin

Fjögur slík námskeið eru í boði við utanverðan Eyjafjörð núna á vorönn og er vert að benda fólki á að starfsmenntasjóðir félagsmanna hjá Einingu-Iðju hjá ríki og sveitarfélögum greiða í mörgum tilfellum fullt þátttökugjald á námskeiðunum. Fólk getur fengið um þetta upplýsingar á heimasíðu SÍMEY og hjá viðkomandi starfsmenntasjóðum.

 

Þau starfstengdu námskeið sem um ræðir eru:

Að setja mörk
Kennt á skrifstofu Einingar-Iðju á Siglufirði 13. mars kl. 08:30-12:30.
Á námskeiðinu verður rætt um samskiptatækni – að setja mörk í lífi og starfi af ábyrgð, vinsemd og festu.
Nánari upplýsingar og skráning á heimasíðu SÍMEY.

Styrkleikar í lífi og starfi
Kennt í námsveri SÍMEY í Víkurröst á Dalvík 19. mars kl. 14:00-17:00.
Á námskeiðinu fá þátttakendur innsýn í að þekkja sína eigin styrkleika og nýta sér þá í leik og starfi.
Nánari upplýsingar og skráning á heimasíðu SÍMEY.

Internetið og snjallforrit
Kennt á skrifstofu Einingar-Iðju á Siglufirði 18. og 25. mars kl. 17:00-21:00 báða dagana.
Námskeiðið hentar þeim sem vilja ná sem bestum tökum á notkun Internetsins og vinsælustu snjallforritunum Facebook, Instagram og Snapchat.
Nánari upplýsingar og skráning á heimasíðu SÍMEY.

Betri skilningur og bætt samskipti
Kennt 16. apríl í námsveri SÍMEY í Víkurröst á Dalvík kl. 09:-12:00 og skrifstofu Einingar-Iðju á Siglufirði kl. 14:00-17:00.
Þátttakendur taka DISC könnun sem skilgreinir hvaða persónueiginleikar er sterkir hjá þeim og hvernig þeir geta sér þá frekar. Um leið verður sjónum beint að því hvernig hægt er að nýta sína eiginleika til samskipta við aðra á vinnustað.
Nánari upplýsingar og skráning á heimasíðu SÍMEY.

 

Tómstundanámskeiðin

Þrjú tómstundanámskeið verða í boði við utanverðan Eyjafjörð núna á vorönn og er rétt að undirstrika að stéttarfélögin Eining-Iðja, Kjölur og Sameyki greiða námskeiðsgjöld fyrir þessi námskeið að fullu fyrir sína félagsmenn. En jafnframt ber að taka fram að tómstundanámskeiðin eru öllum opin og aðrir en félagsmenn ofangreindra félaga geta kannað rétt sinn hjá sínum stéttarfélögum.

Þessi þrjú tómstundanámskeið eru:

Að varða veginn – verður 2020 þitt besta ár?
Kennt í námsveri SÍMEY í Víkurröst á Dalvík 6. febrúar kl. 17:00-20:30.
Á námskeiðinu verður horft um öxl en fyrst og fremst horft fram á veginn -  til komandi mánuða á árinu 2020. Markmiðið er að þátttakendur hafi í námskeiðslok skýra sýn á hvert þeir vilja stefna á árinu. Á námskeiðinu verður m.a. unnið með þátttakendum með aðferðum markþjálfunar.
Nánari upplýsingar og skráning á heimasíðu SÍMEY.

Matreiðslunámskeið – Miðausturlönd
Kennt í Dalvíkurskóla 24. febrúar kl. 17:00-20:00.
Rætt verður um hráefni og krydd í matreiðslu í Miðausturlöndum – t.d. Líbanon, Marokko, Sýrlandi, Ísrael, Grikklandi, Tyrklandi og Egyptalandi, búnir til nokkrir smáréttir frá þessum löndum og námskeiðinu lýkur með veislu þar sem fólk nýtur afrakstursins.
Nánari upplýsingar og skráning á heimasíðu SÍMEY.

Grunnatriði hjóla og hjólreiða
Kennt í sal Einingar-Iðju á Siglufirði 16. maí kl. 09:12:00.
Það hefur sannarlega orðið sprenging um allt land í hjólreiðum á síðustu árum. Á þessu námskeiði verður farið í ýmislegt áhugavert og hagnýtt í sambandi við hjólreiðar og leiðbeint með val á hjólum, umhirðu þeirra o.fl.
Nánari upplýsingar og skráning á heimasíðu SÍMEY.