Betri skilningur og bætt samskipti

Flokkur: námskeið

Þarfir einstaklinga eru mismunandi þegar kemur að samskiptum. Oft er það þannig að við komum fram við fólk á þann hátt sem við viljum að sé komið fram við okkur sjálf, sem er gott og gilt. En hvað ef þú gætir komið fram við fólk eins og það vill að sé komið fram við sig?

Everything DiSC® er byggt á rannsóknarvinnu William Moulton Marston Ph.D. (1893-1947) sem greindi fólk niður í fjórar manngerðir:

  • D fyrir Dominance
  • i fyrir Influence
  • S fyrir Steadiness
  • C fyrir Conscientiousness

Þátttakendur á námskeiðinu munu taka Everything DiSC Workplace könnun á netinu áður en námskeiðið hefst. Úr könnuninni er síðan unnin skýrsla, sem er einstaklingsbundin, sem skilgreinir hvaða persónueiginleikar eru sterkir hjá þátttakandanum og hvernig hægt er að nýta þá frekar. Þátttakendur fá einnig innsýn í hvernig þeir geta nýta sína eiginleika í samskiptum við aðra.

Námskeiði byggist síðan upp þannig að farið er yfir hvað D, i, S, og C stendur fyrir, hverjir styrk- og veikleikar hverrar manngerðar eru. Þátttakendur vinna mikið með skýrsluna á námskeiðinu. Einnig læra þátttakendur hvernig hægt er á einfaldan hátt að þekkja mun á milli einstaklinga (læra að lesa fólk útfrá DiSC) og þannig hvernig hægt er að eiga góð og þæginleg samskipti sem skila árangri.

Könnunin og skýrslan eru á ensku.

Um 40 milljónir manns hafa fengið DiSC þjálfun í gegnum tíðina.

Námskeiðið er fyrir alla þá sem vilja auka áhrif sín í samskiptum. Samskipti eru einn mikilvægasti þátturinn sem vinnustaðir munu krefjast í kjölfar meiri tæknivæðingar.

Fyrirkomulag: Námskeiðið byggist upp á fyrirlestrarformi og virkri þátttöku einstaklinga.

Lengd: 3 klst.

Verð: 26.700kr

Leiðbeinandi: Kjartan Sigurðsson vottaður DiSC þjálfari. Starfaði við þjálfun einstaklinga í Everything DiSC í Bandaríkjunum og hefur unnið með fyrirtækjum á Íslandi við að greina og þjálfa starfsfólk þess. 

*Félagsmenn í stéttarfélaginu Eining Iðja  athugið, starfsmenntasjóðirnir Landsmennt, Ríkismennt og Sveitamennt greiða námskeiðsgjaldið að fullu fyrir félagsmenn í Einingu Iðju. 

*Aðilar að Iðunni eiga rétt á 75% niðurgreiðslu á námskeiðið og geta skráð sig á www.idan.is. 

Athugið að námskeiðið er opið öllum og minnum við aðra en félagsmenn þessara félaga á að kanna rétt sinn hjá sínu stéttarfélagi.

 

Heiti námskeiðs Dags Dagar Tími Staðsetning Verð