Ársfundur SÍMEY í dag

Valgeir B. Magnússon framkvæmdastjóri SÍMEY fer yfir starfsemi og rekstur SÍMEY á árinu 2025 á ársfu…
Valgeir B. Magnússon framkvæmdastjóri SÍMEY fer yfir starfsemi og rekstur SÍMEY á árinu 2025 á ársfundinum í dag.

Á ársfundi SÍMEY í húsakynnum miðstöðvarinnar á Akureyri í dag var farið yfir starfsemi SÍMEY og rekstur á árinu 2025. Rekstrartekjur voru 292 milljónir á liðnu ári og hækkuðu um 11 milljónir milli ára. Rekstrargjöldin voru 297 milljónir og hækkuðu um 21 milljón milli ára. Að teknu tilliti til fjármunatekna og -gjalda var rekstrarniðurstaðan neikvæð um 1,1 milljón.

Arna Jakobína Björnsdóttir, sem verið hefur formaður stjórnar SÍMEY frá 2003, flutti eftirfarandi ávarp á aðalfundinum:

„Liðið ár markaði mikilvæg tímamót í starfsemi Símenntunarmiðstöðvar Eyjafjarðar þegar 25 ár voru liðin frá stofnun hennar. Frá upphafi hefur hlutverk miðstöðvarinnar verið skýrt og mikilvægt: að efla símenntun, styðja við þróun atvinnulífs og auka aðgengi fólks að fjölbreyttum námstækifærum.

SÍMEY varð til í nánu samstarfi opinberra aðila, atvinnulífs og menntastofnana með það að markmiði að styrkja menntunarstig á svæðinu og bregðast við þörfum samfélagsins fyrir aukna þekkingu og færni. Sú samvinna hefur verið hornsteinn starfseminnar allar götur síðan og hefur skapað traustan grunn fyrir áframhaldandi þróun.

Á þeim 25 árum sem liðin eru hefur starfsemi SÍMEY vaxið og þróast verulega. Framboð náms og þjónustu hefur orðið fjölbreyttara og sveigjanlegra, þar sem bæði er horft til þarfa atvinnulífsins og einstaklinga, óháð stöðu þeirra á vinnumarkaði. Sérstaklega má nefna aukið vægi raunfærnimats og náms- og starfsráðgjafar sem hefur gert fjölda einstaklinga kleift að fá viðurkenningu á færni sinni og opna nýjar leiðir til náms og starfa.

Árangur starfseminnar endurspeglast í umfangsmikilli þátttöku. Undanfarin ár hafa tugir þúsunda einstaklinga sótt námskeið, ráðgjöf eða aðra þjónustu hjá SÍMEY. Þessi víðtæku áhrif sýna skýrt mikilvægi miðstöðvarinnar fyrir samfélagið, einstaklinga og fyrirtæki.

SÍMEY hefur jafnframt lagt ríka áherslu á nýsköpun og tækninýtingu í námi og kennslu. Með markvissri þróun á tæknilausnum og aðferðum hefur tekist að auka aðgengi að námi og mæta breyttum kröfum samfélagsins. Sú þróun verður áfram lykilatriði á komandi árum, ekki síst í ljósi hraðra breytinga á vinnumarkaði og aukinnar áherslu á símenntun.

Rekstur SÍMEY hefur einkennst af stöðugleika og festu. Starfsfólk hefur sýnt mikla fagmennsku og tryggð og stjórn hefur starfað í góðu samstarfi við framkvæmdastjórn og helstu samstarfsaðila. Fjárhagslegur grundvöllur hefur verið traustur, meðal annars með stuðningi stjórnvalda og stofnaðila frá upphafi.

Fram undan eru áframhaldandi tækifæri og áskoranir. Samfélagið er í stöðugri þróun og kröfur til menntunar og færni aukast sífellt. Í því samhengi mun framhaldsfræðslan gegna enn stærra hlutverki, bæði fyrir einstaklinga og atvinnulíf. Mikilvægt er að tryggja áframhaldandi stuðning og skýra stefnumótun á þessu sviði.

SÍMEY mun áfram byggja starf sitt á grunngildum sínum – tækifærum, styrk, trausti og sveigjanleika – og leitast við að þróa þjónustu sína í takt við þarfir samfélagsins. Með því verður miðstöðin áfram öflugur vettvangur fyrir nám, þróun og samstarf á Norðurlandi.“

Valgeir B. Magnússon framkvæmdastjóri SÍMEY sagði að í ljósi þess að töluverðar breytingar hafi orðið í starfsmannahópnum á liðnu ári væri rekstrarniðurstaða ársins ásættanleg. Sem fyrr hefði verið í mörg horn að líta og starfsemin verið afar fjölbreytt, í það heila hefðu um 3500 manns notið þjónustu SÍMEY á árinu. Ívið færri námskeið hafi verið 2025 en 2024 en þó hafi svokölluðum nemendastundum fjölgað um 11 þúsund frá fyrra ári, fyrst og fremst vegna þess að lengri námsleiðir í SÍMEY hafi vaxið á árinu.
Valgeir sagðist vera bjartsýnn á yfirstandandi ár. Mörg járn væru í eldinum og mikil og jöfn spurn væri eftir þjónustu miðstöðvarinnar, t.d. væri sem fyrr mikil ásókn í íslenskunám fyrir fólk af erlendum uppruna. Hins vegar væri ekkert launungarmál að ónóg fjárframlög frá ríkinu til t.d. kennslu fólks með fötlun kæmi í veg fyrir að SÍMEY gæti þjónustað þennan hóp þjónustunotenda miðstöðvarinnar eins og vilji væri til.

Hér er ársskýrsla SÍMEY 2025.
Hér er ársreikningur SÍMEY 2025.