Græn umskipti er þróunarverkefni sem Þekkingarnet Þingeyinga og SÍMEY hafa unnið að í tæplega tvö ár í samvinnu við sveitarfélög og atvinnulífið á Norðurlandi eystra. Markmið með verkefninu var að gera stutt fræðslumyndbönd um umhverfismál í því skyni að auka umhverfisvitund, stuðla að minni neyslu og ýta undir rétta meðhöndlun úrgangs. Af hálfu Þekkingarnets Þingeyinga vann að verkefninu Hilmar Valur Gunnarsson verkefnastjóri en af hálfu SÍMEY verkefnastjórarnir Kristín Björk Gunnarsdóttir og Ingunn Helga Bjarnadóttir.
Í júní 2024 var gerður samningur Fræðslumiðstöðvar atvinnulífsins, SÍMEY og Þekkingarnets Þingeyinga um styrk til verkefnisins og í kjölfarið hófst vinnan. Til að byrja með var fundað með fagaðilum á sviði umhverfis- og loftslagsmála til að ákvarða efnistök fyrir fræðslumyndböndin. Að þeirri vinnu komu einnig starfsmenn SSNE – Samtaka sveitarfélaga og atvinnuþróunar á Norðurlandi eystra.
Í framhaldinu var ákveðið að gera annars vegar myndband fyrir einstaklinga og fyrirtæki um moltugerð og hins vegar myndband um svokallaða frískápa.
Við gerð myndbandsins um moltugerð var leitað til einstaklings sem hefur reynslu af moltugerð og hefur notað moltuna í kartöflugarðinum heima hjá sér og einnig lögðu verkefninu lið sveitarfélagð Þingeyjarsveit og Berjaya Hótel í Mývatnssveit. Amtsbókasafnið á Akureyri kom að gerð myndbandsins um frískápa enda stendur einn slíkur við Amtsbókasafnið.
Gerður var samningur við framleiðslufyrirtækið Eyrarland á Akureyri um upptökur og eftirvinnslu myndbandanna.
Handritsgerð var í höndum verkefnastjóranna þriggja í samstarfi við Eyrarland og þá einstaklinga og stofnanir sem komu fram í myndböndunum.
Upptökur myndbandanna um moltugerð voru í maí 2025 í Mývatnssveit og tóku þær tvo daga. Aðra tvo daga í september 2025 var tekið upp efni í myndbandið um frískápana. Eyrarland sá um samsetningu og eftirvinnslu og skilaði báðum fræðslumyndböndunum, sem hvort var innan við fjórar mínútur að lengd, um mánaðamótin október-nóvember 2025. Þau voru í kjölfarið send til stofnana og sveitarfélaga á starfssvæðum Þekkingarnets Þingeyinga og SÍMEY. Einnig voru þau birt á miðlum SÍMEY og Þekkingarnetsins.
Það er mat þeirra sem að verkefninu standa að vel hafi til tekist og því markmiði hafi verið náð að gera stutt og hnitmiðuð myndbönd um græna færni í umhverfis- og loftlagsmálum.
Hér er myndbandið um moltugerð.
Hér er myndbandið um frískápa.