Þolinmæði og þrautseigja

Sæl og glöð að lokinni brautskráningu í dag - Saja Abdullah Al Bdaiwi, Aadel eiginmaður hennar og fi…
Sæl og glöð að lokinni brautskráningu í dag - Saja Abdullah Al Bdaiwi, Aadel eiginmaður hennar og fimm börn þeirra, Ahmad, Mohammed, Islam, Ayan og Ebtesam Al Bdaiwi

Við brautskráninguna í SÍMEY í dag flutti Saja Abdullah Al Bdaiwi ávarp brautskráningarnema –  á íslensku. Hún  útskrifaðist af Leikskólaliða- og stuðningsfulltrúabrú.

Saja býr í Súðavík og hefur stundað námið í fjarnámi. Þótt um langan veg væri að fara ákvað hún að mæta til brautskráningar í dag. Með henni var eiginmaður hennar, Aadel, og fimm börn þeirra. Fjölskyldan var að koma í fyrsta skipti til Akureyrar.

Saja er frá suðurhluta Sýrlands og þar gekk hún í skóla. Stríðsátökin í landinu gerðu það að verkum að fjölskyldan, eins og fjölmargir Sýrlendingar, neyddist til að yfirgefa landið og fór til Jórdaníu. Þar var búið við afar þröngan kost í flóttamannabúðum. Þann 6. mars 2018 komu Saja og eigmaður hennar og tvö elstu börn þeirra til Íslands. Leiðin lá vestur á firði, fyrst bjó fjölskyldan á Flateyri en undanfarin ár í Súðavík. Saja hefur unnið á leikskóla á Ísafirði og hefur notið þess mjög að vinna þar. Sem stendur er hún þó ekki í vinnu því hún lenti í alvarlegu bílslysi snemma á þessu ári á milli Ísafjarðar og Súðavíkur. Í kjölfarið fór hún í þrjár aðgerðir og er nú í endurhæfingu.
Þrátt fyrir þetta alvarlega slys hefur hún stundað nám í SÍMEY og segist hafa notið þess mjög. Vissulega hafi tungumálahindranirnar verið til staðar og Google Translate þýðingarnar ekki alltaf verið þær bestu, en engu að síður hafi hún með þolinmæði og þrautseigju getað komist yfir þröskuldana og að endingu yfir marklínuna. Þakkaði Saja eiginmanni sínum sérstaklega fyrir stuðninginn og hvatninguna og einnig þakkaði hún Helenu Sif Guðmundsdóttur verkefnastjóra og ráðgjafa í SÍMEY fyrir ómælda hjálp og hvatningu.
Saja ætlar ekki að láta staðar numið í námi því hún hefur skráð sig til náms í leikskólakennarafræðum við Háskóla Íslands í haust.