STJÓRNUN OG SAMSKIPTI:Vinnustofa fyrir stjórnendur

Í samstarfi við Starfsleikni ehf. býður SÍMEY upp á námskeið fyrir stjórnendur. Góðir stjórnendur stjórna með samtölum við fólkið og gera sér grein fyrir því að samtalið skiptir miklu máli til að ná fram gagnkvæmum skilningi á markmiðum og árangri í starfi. Á vinnustofunni er fjallað um samskiptatengda þætti sem varða formleg og óformleg samtöl stjórnenda við starfsfólk. Lögð er áhersla á hvetjandi samskiptatækni sem beinir starfsfólki rétta leið hvað varðar bæði verkefnin, starfsandann og liðsheildina. Samtöl sem stjórnandi og starfsmaður eiga sín á milli eiga sér til dæmis stað við ráðningu, á fyrri stigum starfa (nýliðaþjálfun), við upplýsingagjöf, þegar breytinar eiga sér stað, í starfsmanna-samtölum og frammistöðusamtölum þegar ræða þarf markmið og árangur, hvetja og veita endurgjöf með hrósi eða gagnrýni og jafnvel þegar ræða þarf viðkvæm eða persónuleg mál starfsmanna eða leysa þarf ágreining milli starfsfólks. Lengd: 12 klukkustundir Forkröfur náms: Engar Námsmarkmið: Styrkja samskipti og samtalstækni við starfsfólk. Námsmat: Munnleg endurgjöf frá kennara Kennari: Steinunn Stefánsdóttir BA Sálfræði MSc Viðskiptasálfræði MSc Streitufræði Hvar: Þórsstíg 4, Akureyri, SÍMEY Hvenær: Fimmtudagur og föstudagur 4. nóv.- 5. nóv. frá kl.09:00 -12:00 og 13:00 - 16:00 Verð: 47.500 kr.

Í samstarfi við Starfsleikni ehf. býður SÍMEY upp á námskeið fyrir stjórnendur. Góðir stjórnendur stjórna með samtölum við fólkið og gera sér grein fyrir því að samtalið skiptir miklu máli til að ná fram gagnkvæmum skilningi á markmiðum og árangri í starfi.
Á vinnustofunni er fjallað um samskiptatengda þætti sem varða formleg og óformleg samtöl stjórnenda við starfsfólk. Lögð er áhersla á hvetjandi samskiptatækni sem beinir starfsfólki rétta leið hvað varðar bæði verkefnin, starfsandann og liðsheildina. Samtöl sem stjórnandi og starfsmaður eiga sín á milli eiga sér til dæmis
stað við ráðningu, á fyrri stigum starfa (nýliðaþjálfun), við upplýsingagjöf, þegar breytinar eiga sér stað, í starfsmanna-samtölum og frammistöðusamtölum þegar ræða þarf markmið og árangur, hvetja og veita endurgjöf með hrósi eða gagnrýni og jafnvel þegar ræða þarf viðkvæm eða persónuleg mál starfsmanna eða leysa þarf ágreining milli starfsfólks.

Lengd: 12 klukkustundir
Forkröfur náms: Engar
Námsmarkmið: Styrkja samskipti og samtalstækni við starfsfólk.
Námsmat: Munnleg endurgjöf frá kennara
Kennari: Steinunn Stefánsdóttir BA Sálfræði MSc Viðskiptasálfræði MSc Streitufræði
Hvar: Þórsstíg 4, Akureyri, SÍMEY
Hvenær: Fimmtudagur og föstudagur 4. nóv.- 5. nóv. frá kl.09:00 -12:00 og 13:00 - 16:00
Verð: 47.500 kr.

Meira