SÍMEY aðili að Velkomin til Akureyrar

SÍMEY tekur þátt í verkefninu Velkomin til Akureyrar sem hefur það að markmiði að efla samstarf fyri…
SÍMEY tekur þátt í verkefninu Velkomin til Akureyrar sem hefur það að markmiði að efla samstarf fyrirtækja og stofnana um hvernig best sé staðið að því að taka á móti starfsfólki af erlendum uppruna.

SÍMEY er aðili að verkefninu Velkomin til Akureyrar sem hefur það að markmiði að stuðla að samstarfi fyrirtækja og stofnana um hvernig best sé staðið að því að taka á móti starfsfólki af erlendum uppruna. Hjá SÍMEY hefur byggst upp mikil þekking og reynsla í þessum málaflokki á undanförnum árum með fjölda námskeiða í íslensku fyrir fólk af erlendum uppruna og hinum ýmsu samfélagsnámskeiðum fyrir fólk sem kemur til Íslands til lengri eða skemmri dvalar.

Akureyrarbær heldur utan um Velkomin til Akureyrar, sem fékk í desember sl. tæplega tveggja milljóna króna styrk úr Uppbyggingarsjóði Norðurlands eystra, en auk SÍMEY koma að verkefninu Sjúkrahúsið á Akureyri, Höldur – Bílaleiga Akureyrar og Kjarnafæði-Norðlenska.

Nú þegar hafa safnast í sarpinn heilmiklar upplýsingar og reynsla og til að byrja með verður í verkefninu lögð áhersla á að greina stöðuna og draga saman upplýsingar um bæði það sem hefur reynst vel í móttöku og aðlögun fólks af erlendum uppruna að íslensku samfélagi og það sem hefur síður gengið vel. Markmiðið með verkefninu er að til lengri tíma litið verði fyrirtæki og stofnanir á Akureyri og í Eyjafirði þekkt fyrir að taka vel á móti erlendu starfsfólki.

Þórdís Gísladóttir verkefnastjóri hjá SÍMEY segir að verkefnið sé þegar hafið og markmiðið sé að miðla upplýsingum áfram til annarra fyrirtækja og stofnana. „Við lítum svo á að þetta sé bara fyrsta skrefið í stærra verkefni. Hlutverk okkar í SÍMEY er að leggja til sérfræðiþekkingu við gerð og framkvæmd fræðsluáætlana, að þróa námskeið og aðlögunarverkefni fyrir fólk af erlendum uppruna og setja upp vinnusmiðju. Verkefnið er enn á undirbúningsstigi, enda nýlega til komið, og við erum að vinna að undirbúningi vinnustofa og afla upplýsinga. Horft er til þess að þessi fyrsti áfangi verkefnisins verði í tíu mánuði, fram í nóvember á þessu ári. Þá er þess vænst að unnt verði að miðla upplýsingum sem út úr þessari vinnu kemur til fleiri fyrirtækja og stofnana,“ segir Þórdís Gísladóttir.