Sextán luku dyravarðanámskeiði

Dyravarðanámskeiðið var sex kvöld og luku því sextán þátttakendur að þessu sinni.
Dyravarðanámskeiðið var sex kvöld og luku því sextán þátttakendur að þessu sinni.

Síðastliðinn fimmtudag lauk dyravarðanámskeiði sem SÍMEY hefur árlega haldið í samstarfi við lögregluna á Norðurlandi eystra og stéttarfélagið Einingu-Iðju. Lágmarksaldur þeirra sem vilja starfa sem dyraverðir er 20 ár og skulu þeir hafa hreint sakavottorð. Að þessu sinni luku sextán þátttakendur náminu.

Í námi dyravarða er sjónum beint að skyldum þeirra og réttindum frá ýmsum sjónarhornum. Þetta var sex kvölda námskeið, hófst 7. apríl og lauk 16. apríl, og var haldið í húsnæði SÍMEY við Þórsstíg, á slökkvistöðinni á Akureyri og í húsnæði Atlantic Jiu jitsu Iceland við Tryggvabraut á Akureyri.

Á námskeiðinu ræddi Agnes Björk Blöndal aðstoðarsaksóknari um lög um veitinga- og gististaði, skemmtanahald, borgaralega handtökur, áfengislög og leyfi vegna áfengisveitinga, Jóhann Þór Jónsson deildarstjóri eldvarnaeftirlitsins ræddi um brunavarnir, Valdís Ösp Jónsdóttir fjallaði um neyðarmóttöku Sak, Margeir Páll Björgvinsson frá lögreglunni á Norðurlandi eystra ræddi m.a. um fíkniefni, skoðun skilríkja og samskipti dyravarða og lögreglu, fulltrúi frá VÍS sagði frá tryggingum í starfi dyravarða, Tómas Pálsson frá Atlantic Jiu jitsu Iceland veitti þátttakendum innsýn í sjálfsvörn og handtökur, Jóhann Jóhannsson frá Rauða krossinum leiðbeindi um skyndihjálp og loks fjallaði fulltrúi frá Einingu-Iðju um réttindi og skyldur dyravarða.