Nú er opið fyrir skráningar í SÍMEY í námsleiðina Rekstrar- og frumkvöðlanám, sem hefur fengið vottun Fræðslumiðstöðvar atvinnulífsins. Samkvæmt kennsluáætlun verður námið í fimm mánuði, það hefst 11. janúar 2027 og lýkur 9. júní. Allt námið verður í fjarnámi og áhugasömum um allt land er því velkomið að skráð sig í það.
SÍMEY hefur áður boðið upp á tveggja anna sölu-, markaðs- og rekstrarnám en þessi námsleið er styttri og er nú í boði í fyrsta skipti í SÍMEY. Vinnuframlag þátttakenda er í heildina metið 192 klukkustundir á námstímanum, þar af eru fyrirlestrarnir og umræðutímarnir samtals 120 klukkustundir.
Eins og nafn námsleiðarinnar gefur til kynna er fjallað um hvernig hugmyndir frumkvöðla verða að fyrirtækjum. Sú leið er ekki alltaf bein og breið og að þessum ferli verður í víðu samhengi beint sjónum í náminu.
Námið skiptist í eftirfarandi námsþætti (í tímaröð frá janúar til júní): Frumkvöðlafræði og fyrirtækjasmiðja, markaðsrannsóknir, áætlanagerð í töflureikni, verkefnastjórnun, lykiltölur og lausafé og gerð viðskiptaáætlunar og samningatækni. Náminu lýkur með því að þátttakendur setja upp viðskiptaáætlanir.
Sem fyrr segir er námið allt í fjarnámi. Fyrirkomulagið verður með þeim hætti að þrisvar í viku, á mánudögum, miðvikudögum og föstudögum, verða fyrirlestrar birtir á netinu. Þátttakendur horfa á þá þegar þeim hentar. Námsmat byggir á verkefnum sem verða lögð fyrir út frá efni fyrirlestranna og yfir þau verður farið á netfundum á fimmtudögum kl. 17-18 þar sem nemendur fá tækifæri til þess að ræða við kennara.
Kennari verður Elmar Hallgríms Hallgrímsson. Hann er heimspeki-, rekstrar- og lögfræðimenntaður og hefur m.a. kennt við Háskóla Íslands og Háskólann á Bifröst.
Sem fyrr segir hefur verið opnað fyrir umsóknir í námsleiðina og er umsóknarfrestur til 5. janúar 2027. Námsgjaldið er kr. 60.600. Umsækjendum er bent á möguleika á styrk frá stéttarfélögum eða fræðslusjóðum. Námsgjaldið verður ekki innheimt fyrr en í fyrstu viku janúar 2027.
„Þessi námsleið er öllum opin en hún er ekki síst sett upp fyrir þá sem hafa hug á því að stofna fyrirtæki, einnig þá sem eru með eigin rekstur, fólk sem vinnur við markaðsmál og þá sem hafa áhuga á að vinna að markaðsmálum,“ segir Helena Sif Guðmundsdóttir, verkefnastjóri í SÍMEY.
Hér eru upplýsingar um námið og einnig eru Helena Sif (helena@simey.is) og Andrea Laufey Hauksdóttir (andrea@simey) verkefnastjórar í SÍMEY fúsar að veita frekari upplýsingar.