Símenntunarmiðstöð Eyjafjarðar (SÍMEY) og Bara tala ehf. í Reykjavík hafa sameinað krafta sína til að nýta kennslufræði SÍMEY og stafræna nálgun Bara tala í íslenskukennslu fyrir innflytjendur. Þetta samstarf miðar að því að þróa einstaka blöndu af stafrænu námi og kennslu með kennara, með það að markmiði að gera íslenskukennsluna árangursríkari og aðgengilegri fyrir innflytjendur, ásamt því að styrkja kennslufræðina hjá báðum aðilum.
Bara tala ehf. býður upp á stafræna íslenskukennslu, sérstaklega lagaða að þörfum vinnumarkaðarins, og hlaut fyrirtækið Menntasprota atvinnulífsins í febrúar 2024.
Samstarf SÍMEY og Bara tala svarar kalli nýjustu úttektar OECD sem leggur áherslu á að bæta inngildingu innflytjenda og gera íslenskukennslu aðgengilegri. Með því að auka aðgengi að íslenskunámi, sér í lagi fyrir þá sem eru í vaktavinnu, búa á landsbyggðinni eða fjarri menntastofnunum, stefnir verkefnið að því að skapa betri tækifæri fyrir innflytjendur til að tileinka sér tungumálið.
„Við erum stolt af þessu samstarfi og hlökkum til að vinna með SÍMEY. Þekking þeirra á kennslu íslensku sem annars máls er ómetanleg og við sjáum mikla möguleika í því að aðlaga forritið okkar að þeirra kennsluháttum. Með slíkri þverfaglegri nálgun getum við náð enn lengra,“ segir Jón Gunnar Þórðarson, framkvæmdastjóri Bara tala ehf.
Svar við ráðleggingum OECD
Í nýlegri úttekt OECD er bent á að íslenskan sé lykilatriði til að skapa inngildandi samfélag og að auka möguleika innflytjenda á að fá störf sem hæfa menntun þeirra og reynslu. Verkefnið byggir á nýstárlegri blöndu af staðkennslu og stafrænni þjálfun, sem leysir mikilvægar áskoranir fyrir innflytjendur. Samstarf SÍMEY og Bara tala veitir innflytjendum sveigjanlegt og einstaklingsmiðað íslenskunám, sem styður þá til að viðhalda og dýpka færni sína hvar og hvenær sem er.
Íslenskukennsla í Bara tala verði hágæða nám
SÍMEY hefur áralanga reynslu af því að kenna íslensku sem annað mál og fræðslumálum almennt fyrir innflytjendur.
Í samstarfi við kennara SÍMEY er unnið að því að efnið í Bara tala standist hæfniviðmið Evrópska tungumálarammans og endurspegli bestu kennsluaðferðirnar. Með reglulegri endurgjöf frá kennurum er námsefnið stöðugt þróað og bætt, sem stuðlar að því að kennarar geti nýtt Bara tala sem öflugt og áhrifaríkt kennslutól fyrir nemendur sína.
„Þetta er átak sem margir koma að til að skapa heildstæða umgjörð um íslenskunemann.Við hjá SÍMEY höfum verið að vinna með hugmyndafræði Evrópska tungumálarammans undanfarin ár og teljum stafræna lausn sem þessa styðja einkar vel þá vinnu, bæði til að auka tæknilæsi nemenda en líka til að mæta betur ólíkum þörfum nemendahópsins okkar. Samstarfið við Bara tala ehf. er staðfesting á mikilvægi þess að takast á við áskoranir innflytjenda með nýjum og skapandi leiðum, sem styrkja inngildingu og skapa fjölbreyttara og sterkara samfélag á Íslandi,” segir Kristín Björk Gunnarsdóttir, verkefnastjóri SÍMEY, og bætir við að þetta samstarf hefði ekki verið mögulegt án aðkomu stafsmenntasjóðanna Ríkismenntar, Landsmenntar, Sveitamenntar og Starfsmenntasjóðs verslunar- og skrifstofufólks.