Í gær, 2. nóvember, var Gísli Kort Kristófersson, sérfræðingur í geðhjúkrun og prófessor við Háskólann á Akureyri, með námskeið í SÍMEY fyrir starfsfólk velferðarsviðs Akureyrarbæjar sem bar yfirskriftina „Lyfjafíkn, einkenni og úrræði“. Námskeiðið, sem var fjölsótt, var hluti af fræðsluáætlun sem unnið er eftir fyrir starfsfólk velferðarsviðs Akureyrarbæjar. Markmiðið með námskeiðinu var að styðja starfsfólk í því mikilvæga og krefjandi starfi sem það sinnir daglega. Í ljósi þess að lyfjafíkn er stórt samfélagslegt vandamál sem snertir fjölskyldur, þjónustukerfi og allt nærumhverfið var talið mikilvægt að fagfólkið væri uppfrætt um þetta efni til að bregðast við af öryggi og fagmennsku. Mikil þátttaka sýndi að þörfin var brýn fyrir slíkt námskeið.
Annað námskeið verður í SÍMEY fyrir starfsfólk velferðararsviðs Akureyrarbæjar þann 1. desember nk. Hulda Sveinsdóttir verkefnastjóri í Háskólanum á Akureyri ræðir um þjónustu við heilabilaða, áhrif heilabilunar á daglegt líf og hvernig unnt er að veita örugga, virðingarríka og einstaklingsmiðaða þjónustu.
Þess skal getið að í síðustu viku hóf SÍMEY að prufukeyra námskrá í „Þjónandi leiðsögn“ sem unnin var í samstarfi við velferðarsvið Akureyrarbæjar. „Þjónandi leiðsögn“ er hugmyndafræði sem unnið hefur verið eftir á velferðarsviði Akureyrarbæjar til margra ára. Prufukeyrslunni lýkur í desember og í kjölfarið verður námskráin send til vottunar í Mennta- og barnamálaráðuneytinu. Að því loknu verður hún aðgengileg hjá Fræðslumiðstöð atvinnulífsins.