Margt að gerast út með firði

Fræðsluárið fer vel af stað hjá SÍMEY út með firði.

Íslenskunámskeið fyrir fólk af erlendum uppruna eru í gangi bæði í Fjallabyggð og Dalvík.

Hópur nemenda er í leikskólaliða- og stuðningsfulltrúanám, en um er að ræða svokallaða brú þar sem starfsreynsla er metin á mót námi í bóklegum greinum. Og á núhafinni vorönn byrjaði hópur í félagsliðabrú og koma nemendur í þessar námsleiðir frá Fjallabyggð og Dalvík, kennsla fer fram að meðaltali einu sinni í viku og kennt er til skiptis í byggðarlögunum tveimur.

Þá er Starfsmannaskóli Samherja farinn af stað, en sá skóli er ,,námskeiðspakki“ sem starfsfólk Samherja hefur sett saman með aðstoð ráðgjafa hjá SÍMEY. Um er að ræða margvísleg námskeið í tölvum, skyndihjálp, fræðslu fyrir stjórnendur, heilsuvernd o.fl.

Um helgina fór svo fram á Dalvík námskeið í hnífasmíði undir stjórn Jóhanns Vilhjálmssonar hnífa- og byssusmiðs. Þar fínunnu þátttakendur hnífsblað og settu á skefti. Árangur námskeiðsins má sjá á meðfylgjandi myndum.