Maryam Holton hóf störf sem verkefnastjóri/ráðgjafi í SÍMEY 23. mars sl. Henni líst vel á þau verkefni sem bíða hennar, starfsemi SÍMEY hafi víðari skírskotanir en hún hafi gert sér grein fyrir. Málefni fólks af erlendum uppruna eru Maryam sérstaklega hjartfólgin og hún segir ánægjulegt að fá tækifæri til þess að vinna að þeim í starfi sínu í SÍMEY. Einnig muni hún m.a. vinna að raunfærnimati og lengri námsleiðum.
Bernska Maryam var í Vesturbænum í Reykjavík en hún fæddist reyndar í Bandaríkjunum þar sem foreldrar hennar bjuggu um tíma. Skólagangan var hefðbundin í Haga- og Melaskóla í Vesturbænum en síðan lá leiðin í MH og svo í Fjölbrautaskólann við Ármúla þaðan sem Maryam lauk stúdentsprófi. Hún rifjar upp að á þessum tíma hafi hún alls ekki vitað hvað hún vildi verða þegar hún yrði stór en ákvað að fara í félagsfræði í Háskóla Íslands. Hluti af náminu var eitt skólaár í skiptinámi í Bretlandi og þar kynntist hún eiginmanni sínum, Adam Fishwick. Eftir BA-gráðu í félagsfræði fór Maryam í framhaldsnám í félagsfræði í Amsterdam í Hollandi.
Eftir að hafa búið í Englandi um tíma flutti fjölskyldan til Íslands og Maryam fór að starfa á leikskóla. Hún segist strax hafa fundið sig vel í því starfi og úr varð að hún fór í kennaranám meðfram vinnu á leikskólanum og síðan kennslu barna af erlendum uppruna í Hvaleyrarskóla í Hafnarfirði í tvo vetur. Maryam segist hafa kunnað kennslunni vel og langað til þess að vinna meira í framtíðinni að málefnum innflytjenda. Hún kenndi síðan um tíma í Grandaskóla í Reykjavík en þegar Adam eiginmanni Maryam bauðst staða við Háskólann á Akureyri var komið að kaflaskilum og fjölskyldan flutti til Akureyrar árið 2022. Maryam fór að kenna í Lundarskóla og starfaði þar í tvo og hálfan vetur. Síðan lá leiðin til Akureyrarbæjar þar sem hún var ráðgjafi í samræmdri móttöku flóttamanna og þekkir því vel til hinna ýmsu hliða varðandi málefni fólks af erlendum uppruna. Þegar síðan starfið í SÍMEY bauðst ákvað hún að slá til og sækja um.
„Þegar við fluttum til Akureyrar sumarið 2022 þekktum við lítið sem ekkert til bæjarins og hingað hafði ég ekki komið lengi. En við vorum fljót að komast inn í samfélagið og ég verð að segja að hér er algjör lúxus að búa, allt til alls og stutt í allt. Þegar skotist er suður áttar maður sig á því hversu mikill tími fer í að komast á milli staða, þar er hraðinn meiri og stressið meira en við eigum að venjast hér á Akureyri,“ segir Maryam Holton.