Dagana 22.-23. september sl. var haldinn á Siglufirði formannafundur Landssambands eldri borgara (LEB). Fundinn sóttu fulltrúar 41 aðildarfélags sambandsins af öllu landinu. Heiða Björk Pétursdóttir og Þórdís Gísladóttir, verkefnastjórar í SÍMEY, fluttu erindi á fyrri degi fundarins og kynntu niðurstöður könnunar sem þær unnu fyrir LEB meðal félagsmanna í félögum eldri borgara um allt land. Svör fengust frá um 1500 félögum og því gaf könnunin bærilega mynd af viðhorfum þeirra til félagsstarfsins og áhersluatriða í starfi félaganna. Niðurstöður könnunarinnar verða liður í stefnumótun LEB og aðildarfélaga þess á næstu misserum. Af hálfu SÍMEY var Snæbjörn Sigurðarson einnig með fræðsluerindi um upplýsingatækni og uppsetningu fjarfunda.
Samkvæmt tölum Hagstofunnar var heildarmannfjöldi á Íslandi í upphafi þessa árs um 394 þúsund manns. Þar af voru um 85 þúsund manns 60 ára og eldri eða um 22% af mannfjölda. Allir sem eru 60 ára og eldri geta sótt um aðild að félögum eldri borgara og þar með orðið hluti af Landssambandi eldri borgara.
Heildarfjöldi 67 ára og eldri, sem flestir miða við sem eftirlaunaaldur, er um 61 þúsund manns eða ríflega 15% landsmanna. Að áratug liðnum gera mannfjöldaspár ráð fyrir að á landinu búi um 480 þúsund manns og allt að fjórðungur landsmanna verði 60 ára og eldri. Þjóðin hefur verið að eldast og sú þróun mun halda áfram – og þar með mun áfram verða hlutfallsleg fjölgun í elstu aldurshópunum.
Fyrr á þessu ári leitaði Landssamband eldri borgara til SÍMEY um greiningu á starfi eldri borgara og hvernig mætti skerpa á hlutverki félaganna og þeirra sem héldu um stjórnartaumana í félögunum. Heiða Björk Pétursdóttir segir að í þessari vinnu hafi verið ákveðið að kalla eftir upplýsingum og viðhorfum eldri borgara um allt land með því að leggja fyrir þá könnun um félagsstarfið og virkni og nýliðun í félögum eldri borgara um allt land. SÍMEY naut liðsinnis aðildarfélaganna við að leggja könnunina fyrir félagsmenn og einnig svöruðu henni margir 60 og eldri sem ekki eru virkir félagsmenn í félögum eldri borgara. Könnuninni svöruðu um 1500 manns sem Heiða Björk segir að hafi verið meiri svörun en gert var ráð fyrir.
LEB hefur orðið þess áskynja að þó svo að aðildarfélögin séu opin fyrir fólk 60 ára og eldri ganga hlutfallslega flestir til liðs við félög eldri borgara eftir að fólk hverfur af vinnumarkaði eftir 67 ára aldur. Þessu vill LEB breyta og liður í því var að fá SÍMEY til þess að varpa ljósi á hvernig mætti ná betur til aldurshópsins 60-66 ára. Heiða Björk segir að könnunin hafi leitt eitt og annað gagnlegt í ljós og niðurstöður hennar hafi verið kynntar á formannafundinum á Siglufirði. Í framhaldinu hafi verið vinnustofur á fundinum þar sem fundarmenn ræddu niðurstöður könnunarinnar. „Í framhaldi af formannafundinum á Siglufirði munum við síðan taka betur saman niðurstöður könnunarinnar og þá umræðupunkta sem komu fram á fundinum og senda greinargerð til aðildarfélaganna og Landssambandsins,“ segir Heiða Björk.
Einnig tengist SÍMEY starfi Félags eldri borgara á Akureyri - EBAK með m.a. fræðslu varðandi tæknilæsi og nú hafa tengsl SÍMEY eflst við starf LEB og eldri borgara í félögum um allt land. Það segir Heiða Björk að sé mjög ánægjulegt því tilfinningin sé sú að á komandi árum muni fjölbreytt starf eldra fólks á Íslandi eflast á öllum sviðum. „Það kom skýrt fram á formannafundinum á Siglufirði að fólk er mjög meðvitað um að félög eldri borgara um allt land hafa víðtækum og vaxandi skyldum að gegna. Eitt af þeim atriðum er að ná til eldra fólks af erlendum uppruna og einnig fólks á aldursbilinu 60-66 ára. Það kom skýrt fram í könnuninni að fólk á þessu aldursbili telur að kynningu á félögunum sé ábótavant og þau þurfi að vera sýnilegri þannig að fólk geti glöggvað sig á fyrir hvað þau standa. Það kom líka fram hjá þessum aldurshópi að viðburðir á vegum félaganna megi ekki alltaf vera á vinnutíma því þar með geti það fólk sem enn er á vinnumarkaði ekki sótt þá. Einnig kom fram í könnuninni að mikilvægt væri að þeir viðburðir sem efnt væri til höfðuðu ekki bara til elsta aldurshópsins. Þarna var t.d. vísað til þess að harmonikkutónlist og gömlu dansarnir höfði ekki til allra. Einn þátttakenda í könnuninni á aldrinum 60-66 ára lét þess getið að hann hafi á sínum yngri árum hlustað á Beatles og Rolling Stones en ekki tónlist foreldra sinna. Þetta er til marks að þessi aldurshópur, 60+, er breiður og áhugi hans á félagsstarfi og tómstundum er að sama skapi breiður og mismunandi,“ segir Heiða Björk Pétursdóttir.