Sem fyrr hefur núna á vorönn verið mikill kraftur í kennslu íslensku sem annars máls í SÍMEY. Nú þegar hafa verið kennd tíu námskeið á önninni og fleiri námskeiðum lýkur í þessari viku. Ef allt gengur upp stefnir í að í annarlok í júní nk. hafi um tuttugu íslenskunámskeið verið kennd í SÍMEY.
Af þeim tíu íslenskunámskeiðum sem þegar er lokið á önninni eru tvö kennd í gegnum vefinn, þau kallast Íslenskuþjálfarinn og eru þátttakendur víða um land og einnig utan landsteinanna. Átta námskeið eru í staðnámi í SÍMEY, flest eru þau kennd á íslensku en einnig er boðið upp á íslenskunámskeið þar sem kennarinn er rússneskumælandi.
Í síðustu kennslustund hvers námskeiðs eru nemendur beðnir um að meta það, þ.m.t. námsefnið, kennsluna og frammistöðu kennaranna. Þegar horft er til mats nemendanna á námskeiðunum á vorönn er útkoman afgerandi jákvæð. Ríflega sjö af hverjum tíu meta kunnáttu sína miklu betri að námskeiðinu loknu og fjórðungur þátttakenda metur kunnáttuna nokkru betri. Kennsluhættir, samskipti við nemendur og undirbúningur kennara fær fimm stjörnur af fimm mögulegum hjá 94-97% nemenda.
Íslenskukennslan er byggð upp í stigum eða þrepum. Námskeið 1 er grunnnámskeið og síðan koll af kolli upp í stig 5. Raunar var íslenskunámskeið 5 í fyrsta skipti kennt í SÍMEY núna á vorönn. Þrettán sóttu námskeiðið og lýstu mikilli ánægju með það.
Annað nýmæli í íslenskukennslunni í SÍMEY verður fyrstu vikuna í júní þegar boðið verður upp á hraðnámskeið – grunnnámskeið á fyrsta stigi. Öll yfirferð námskeiðsins verður á sjö kennsludögum, hvern dag verður kennt í sex tíma, þrjá fyrir hádegi og þrjá eftir hádegi.
Heiða Björk Pétursdóttir, verkefnastjóri í SÍMEY, segir að hér sé um tilraunaverkefni að ræða, Fyrst og fremst sé horft til fólks af erlendum uppruna sem mögulega flytji á starfssvæði SÍMEY núna á vordögum og geti þá strax sótt grunnnámskeið í íslensku en þyrfti að öðrum kosti að bíða haustannar til þess að komast á námskeiðið.