Íslenskunám í kaffi- og matarhléum

Með þessum námskeiðum vill SÍMEY koma til móts við fólk sem vill stunda íslenskunám sitt á vinnutíma…
Með þessum námskeiðum vill SÍMEY koma til móts við fólk sem vill stunda íslenskunám sitt á vinnutíma - annars vegar í morgunkaffitímunum og hins vegar í hádegishléinu.

Þann 5. október nk. mun SÍMEY hefja vefnámskeið í íslensku sem öðru máli sem hafa þá sérstöðu að þau eru hugsuð fyrir fólk af erlendum uppruna sem vill nýta morgunkaffi- eða hádegismatarhlé í íslenskunám. Með öðrum orðum; fólki gefst með þessum hætti kostur á að tvinna íslenskunámið við sína daglegu vinnu. Ekki er um að ræða grunnnámskeið í íslensku, þessi námskeið eru hugsuð fyrir fólk sem hefur lært undirstöðurnar í málinu en vill útvíkka þekkingu sína.

Heiða Björk Pétursdóttir, verkefnastjóri í SÍMEY, segir að með því að bjóða upp á þessa nýjung í íslenskunámi sé leitast við að koma til móts við það fólk af erlendum uppruna sem vill bæta þekkingu sína í tungumálinu en af ýmsum ástæðum á þess ekki kost að sitja námskeið seinni part dags, eftir að daglegri vinnu þess lýkur. Til þess að koma til móts við þetta fólk ætli SÍMEY nú að bjóða upp á veflæg námskeið á vinnutíma á stigi 4 (level 4 – A2-2) og stigi 5 (level 5 – B1).

Fjórða stigs námskeiðin verði í boði frá 5. október fram í miðjan janúar á mánu-, þriðju-, miðvikudags- og föstudögum kl. 09:30-10:15 (morgunkaffi) og fimmta stigs námskeiðin á sama tímabili og sömu vikudaga kl. 11:45-12:30 (hádegishlé). Það verður sem sagt kennt fjórum sinnum í viku á hvoru námskeiði, 45 mínútur í senn.

Heiða segist binda vonir við að þessi námskeið opni möguleika fyrir marga til að bæta við kunnáttu sína í íslensku sem öðru máli og hvetur hún fólk til að láta þetta tækifæri ekki fram hjá sér fara. Til þess að fara af stað með námskeiðin þarf ákveðinn lágmarksfjölda þátttakenda.

Hér er hægt að skrá sig á 4. stigs námskeiðið kl. 09:30-10:15.
Hér er hægt að skrá sig á 5. stigs námskeiðið kl. 11:45-12:30.