Ríflega 160 starfsmenn í fiskvinnslu Samherja á Akureyri og Dalvík hófu vorið 2025 grunnnámskeið í fiskvinnslu. Um er að ræða kjarasamningsbundið námskeið sem öllum í fiskvinnslu er boðið að taka og byggir á samnefndri námskrá Fræðslumiðstöðvar atvinnulífsins. Þetta er 128 klukkustunda nám á 1. hæfniþrepi og er blanda bóklegs og verklegs náms.
Snemma árs 2025 leitaði Samherji samstarfs við SÍMEY um að skipuleggja og halda utan um grunnnámskeið í fiskvinnslu fyrir allt starfsfólk félagsins í landvinnslu á Akureyri og Dalvík. SÍMEY fékk til liðs við sig Fisktækniskóla Íslands og sáu kennarar hans um bóklega hluta námskeiðsins, sem var ýtt úr vör vorið 2025. Þátttakendur sóttu sér fyrirlestra, glærukynningar og verkefni í gegnum kennsluvefinn LearnCove. Í þessum bóklega hluta námsins, sem þátttakendur þurftu að hafa lokið í árslok 2025, var m.a. fjallað um hina ýmsu þætti sem tengjast fiskvinnslu á einn eða annan hátt, t.d innra eftirlit, hreinlæti og öryggi á vinnustöðum. Einnig var fjallað um fjölmenningu, sjálfsstyrkingu og umhverfismál.
Verklegi hluti námskeiðsins er skyndihjálp og rétt líkamsbeiting og voru fyrstu námskeiðin undir lok liðins árs. Stefnt er að því að ljúka þessum námskeiðum og þar með grunnnámskeiðinu í heild sinni á vordögum 2026. Leiðbeinendur frá Rauða krossi Íslands kenna skyndihjálpina en um kennslu líkamsbeitingar sjá þrír iðjuþjálfar á Akureyri.
Helena Sif Guðmundsdóttir hefur af hálfu SÍMEY haft umsjón með þessu námskeiðahaldi. Hún segir að umfangið sé mikið og óneitanlega hafi verið töluvert púsl að ná öllum þráðum saman en í það heila hafi verkefnið gengið vel. Helena segir að í SÍMEY hafi sambærilegt námskeið verið í boði hér á árum áður en í nokkur undanfarin ár hafi ekki verið boðið upp á það. En vonandi verði unnt að bjóða upp á það með reglulegum hætti í framhaldinu.