„Hér eru verkefnin fjölbreytt og skemmtileg. Mér líður mjög vel með að vera hluti af starfsmannahópnum hér í SÍMEY, nálægðin er mikil og fólk vinnur þétt saman,“ segir Andrea Laufey Hauksdóttir, sem hóf störf sem náms- og starfsráðgjafi og verkefnastjóri í SÍMEY núna á haustdögum.
Síðasta áratuginn hefur Andrea búið með fjölskyldu sinni á Akureyri. Rætur hennar eru í Hafnarfirði, þar sem hún ólst hún upp og gekk í Víðistaðaskóla. Andrea rifjar upp að hún hafi að loknum grunnskóla verið afar óráðin í hvað hún vildi verða þegar hún yrði stór. Til að byrja með hafi hún verið í eitt ár á almennri braut matvæla í MK í Kópavogi, enda hafi bæði kokkurinn og bakarinn heillað. En síðar hafi leiðin legið í Fjölbrautaskólann í Garðabæ í eitt ár og eftir það hafi hún tekið hlé frá námi og búið síðan í Noregi um tíma. Námi til stúdentsprófs lauk Andrea frá Fjölbrautaskóla Suðurnesja árið 2014.
„Haustið 2014 byrjaði ég í sálfræði í Háskóla Íslands en það varð síðan úr að ég fór í kennaranám í HÍ haustið 2015. Það nám sótti ég í eitt ár, þar til við fluttum til Akureyrar. Ég hélt þó áfram í náminu í fjarnámi og stundaði það með hléum. Jafnframt starfaði ég sem skólaliði í Naustaskóla. Grunnnámi kennara til B.Ed-prófs lauk ég árið 2021. Ég veitti forstöðu frístund í Naustaskóla skólaárið 2021-2022 en fór síðan í nám í námsráðgjöf í HÍ og lauk því 2024. Með náminu starfaði ég í um hálft ár síðla árs 2023 sem ráðgjafi hjá félagsþjónustu Akureyrarbæjar en vann síðan í rúmt ár á skrifstofu velferðarsviðs Akureyrarbæjar. Þá var ég eitt ár deildarstjóri forvarna- og frístundamála í Lundarskóla. Óvænt bauðst mér síðan að sækja um þetta starf í SÍMEY og sló til. Í raun er þetta mitt fyrsta starf sem náms- og starfsráðgjafi, sem ég menntaði mig til. Hér er ég verkefnastjóri í raunfærnimati og íslenskukennslu fyrir fólk af erlendum uppruna, einnig kem ég að vottaða náminu og er svo í fjölbreyttum verkefnum sem lúta að náms- og starfsráðgjöf. Margt af því sem er á mínu borði þekki ég úr grunnskólanum en það sem helst er frábrugðið er að hér er ég ekki að vinna með börnum heldur fullorðnu fólki sem er skemmtileg tilbreyting,“ segir Andrea Laufey Hauksdóttir.