Fimm daga námskeið í þjónandi leiðsögn

Þátttkendur og leiðbeinendur á námskeiðinu í þjónandi leiðsögn.
Þátttkendur og leiðbeinendur á námskeiðinu í þjónandi leiðsögn.

Í liðinni viku, dagana 13.-17. apríl, var haldið í SÍMEY fimm daga yfirgripsmikið sérhæft námskeið í þjónandi leiðsögn (e. Gentle Teaching). Námskeiðið var ætlað fólki sem hefur lokið grunn- og mentornámi í þjónandi leiðsögn og býr að minnsta kosti yfir fimm ára starfsreynslu í umönnun og stuðningi. Leiðbeinendur á námskeiðinu starfa báðir við COR Academy í Saskatchewan í Kanada, Tim Jones, Gentle Teaching Ambassador og Michael Lavis, forstjóri COR (Creative Options Regina). Námskeiðið var haldið í samstarfi við velferðarsvið Akureyrarbæjar, sem hefur lengi verið í samstarfi við COR, og af hálfu þess hafði umsjón með námskeiðinu Kristján Már Torfason.

COR er einskonar þjálfunar- og fræðslumiðstöð sem býður upp á námskeið fyrir m.a. fólk í félags- og fötlunarþjónustu, skólum og umönnun. Eitt helsta markmiðið er að hjálpa fólki að vinna betur með einstaklingum, sérstaklega viðkvæmum hópum. Markmiðið með námskeiðinu í SÍMEY var að dýpka þekkingu þátttakenda á þjónandi leiðsögn og veita þeim færni til að geta haldið námskeið og leiðbeint öðrum um hugmyndafræði þjónandi leiðsagnar, auk þess að þjálfa mentora.

Leiðbeinendurnir Tim Jones, sem starfar sem Chief Learning Officer eða fræðslustjóri, og Michael Lavis hafa áratuga reynslu í að kenna og þjálfa. Báðir hafa einnig áratuga reynslu sem stjórnendur og hefur Michael hlotið fjölda verðlauna og viðurkenninga fyrir sín störf. Tim er einnig fyrrverandi forseti Gentle Teaching samtakanna.

Í námskeiðslok fengu þátttakendur skírteini sem staðfestir hæfni þeirra til að kenna hugmyndafræði þjónandi leiðsagnar.