Í dag brautskráði SÍMEY um 40 manns af fimm ólíkum námsleiðum; Leikskóla- stuðningsfulltrúabrú, Menntastoðum, Félagsliðabrú, Grafískri hönnunarsmiðju og FabLab-stafrænni smiðju. Þrátt fyrir brautskráninguna í dag er kennslu þó ekki lokið á öllum námskeiðum á þessari önn, síðustu íslenskunámskeið á önninni eru á lokasprettinum.
Nám fyrir leikskólaliða og stuðningsfulltrúa veitir þekkingu og færni til að starfa með börnum í námi og leik. Áhersla er lögð á uppeldisfræði, sálfræði, samskipti og listsköpun. Leikskólaliðar og stuðningsfulltrúar starfa við hlið annars fagfólks á leik- og grunnskólum. Námið er samtals 106 - 111 framhaldsskólaeiningar sem kenndar eru á fjórum önnum.
Nám í Menntastoðum samanstendur af almennum bóklegum greinum á 2. þrepi. Námið er ætlað þeim sem stefna á nám við undirbúningsdeildir háskóla, þeim sem vilja ljúka framhaldsskóla eða þeim sem vilja efla hæfni sína í bóklegum greinum. Einnig má meta nám í Menntastoðum til eininga í bóklegum greinum iðnnáms.
Nám á Félagsliðabrú er fyrir fullorðið fólk sem starfar við umönnun og hefur starfsreynslu sem jafngildir þremur árum og þau sem hafa lokið 200-240 kennslustunda starfstengdum námskeiðum. Lögð er áhersla á félags-, sál- og uppeldisgreinar sem og sérgreinar á sviði fötlunar- og öldrunarþjónustu. Að loknu námi hjá SÍMEY geta nemendur lokið félagsliðabraut í framhaldsskóla og fengið starfsréttindi félagsliða. Slíku námi hafa nemendur sem hafa verið í SÍMEY m.a. lokið í Verkmenntaskólanum á Akureyri.
Grafísk hönnunarsmiðja veitir nemendum tækifæri til að öðlast traustan grunn í helstu hönnunarforritum Adobe og kynnast hvernig gervigreind getur auðveldað skapandi vinnu. Námið hentar jafnt byrjendum í hönnun sem og þeim sem starfa í rekstri og vilja öðlast færni til að hanna eigið kynningarefni fyrir prent- og stafræna miðla.
Í FabLab-stafrænni smiðju er lögð áhersla á að þátttakendur öðlist hagnýta færni í stafrænni framleiðslu og þrói sjálfstæði í að hanna og smíða frumgerðir með fjölbreyttum tækjum og aðferðum. Um er að ræða tíu vikna námskeið sem veitir þátttakendum yfirgripsmikla innsýn í öll helstu verkfæri og tækni sem finna má í FabLab smiðjum. Námskeiðið hentar jafnt byrjendum sem áhugasömum frumkvöðlum, hönnuðum og listafólki sem vilja öðlast góðan skilning á stafrænum framleiðsluaðferðum og frumgerðasmíði.
Valgeir B. Magnússon, framkvæmdastjóri SÍMEY, ávarpaði brautskráningarnema í dag með þessum orðum:
„Það er ætíð gleðiefni að ljúka áföngum í lífinu, að ljúka námi, af hvaða tagi sem er. Það er tími til að staldra við, fara yfir farinn veg og ígrunda aðeins hverju við höfum bætt við okkur eftir það sem að undan er gengið, klappa sér á bakið. Nám er ekki bara hið „námslega“ eða „bóklega“, það er einnig sú staðreynd að hafa tekið skrefið, kynnst nýju fólki, farið út fyrir kassann, tekist á við nýjungar og tekist á við ný tækni. Framhaldsfræðslan á að vera vettvangur til að veita fullorðnu fólki svigrúm til að finna sjálfan sig í viðeigandi umhverfi þar sem það hefur ráðrúm til að tengja saman námsvettvang og sinn reynsluheim og þekkingu. Að staðsetja sjálfan sig.“
Sem fyrr hafa verið margir í námi í SÍMEY í vetur. Ætla má að á ári sæki um 3500 manns nám, raunfærnimat og ráðgjöf í SÍMEY. Það þýðir að SÍMEY er væntanlega fjölsóttasta menntastofnunin í Eyjafirði og er SÍMEY þriðja stærsta símenntunarmiðstöð landsins. Hjá miðstöðinni starfa samtals um 130 manns, nokkrir í fullu starfi en bróðurparturinn sem verktakar við kennslu o.fl.
Einungs lítill hluti nemenda á þessari önn brautskráðist í dag því þegar hafa fjölmargir nemendahópar lokið námi og útskrifast, t.d. nemendur í íslensku sem öðru tungumáli, á námskeiðum innan fyrirtækjaskóla, í almennu námskeiðahaldi, í veflægum námskeiðum o.fl.
Við brautskráninguna í dag flutti ávarp Saja Abdullah Al Bdaiwi. Hún útskrifaðist í dag af Leikskólaliða- og stuðningsfulltrúabrú. Hún býr í Súðavík og hefur tekið allt nám sitt í SÍMEY í fjarnámi.
Um tónlistarflutning við brautskráningu sá Anna Skagfjörð.
Að brautskráningu lokinni bauð SÍMEY brautskráningarnemum, gestum og starfsfólki upp á veitingar.