Á fundinum var sjónum beint að kjarnahlutverki símenntunarmiðstöðva sem mikilvægum fræðslu- og samfélagsinnviðum. Umræður snéru meðal annars að mikilvægi aðgengis íbúa að náms- og starfsráðgjöf og að boðið sé upp á raunfærnimat í heimabyggð í nánu samstarfi við atvinnulíf. Sérstök áhersla var lögð á hlutverk símenntunarmiðstöðva í samfélagslegri inngildingu og íslenskukennslu, jöfnu aðgengi að námi og byggðaþróun.
Heimsókninni lauk á opnum fundi með forsætisráðherra og ráðherra menningar-, nýsköpunar og háskólaráðuneytis. Meðal umræðuefna var þáttur símenntunarmiðstöðva í íslenskukennslu, aðlögun innflytjenda og virkni á vinnumarkaði í tengslum við atvinnustefnu stjórnvalda.