Fjölbreytt námskeið í samstarfi við stéttarfélögin

Sem fyrr verða í boði núna á vörönn fjölmörg áhugaverð námskeið í samstarfi SÍMEY og Farskólans á No…
Sem fyrr verða í boði núna á vörönn fjölmörg áhugaverð námskeið í samstarfi SÍMEY og Farskólans á Norðurlandi vestra.

Eins og undanfarin ár bjóða SÍMEY og Farskólinn á Norðurlandi vestra í vetur upp á fjölbreytt stað- og vefnámskeið. Á starfssvæði SÍMEY eru þessi námskeið í samstarfi við stéttarfélögin Einingu-Iðju, Kjöl og Sameyki og þá starfsmenntasjóði sem standa þeim að baki, auk stéttarfélaga sem eiga aðild að Iðuni fræðslusetri. Félagsmönnum stéttarfélaganna gefst kostur á að sækja námskeiðin sér að kostnaðarlausu. Fyrir áramót voru haldin nokkur slík námskeið og framundan er fjöldi námskeiða, hvert þeirra er nokkurra klukkustunda langt að einu námskeiði frátöldu, Uppleið - hugræn atferlismeðferð, sem er alls 40 klukkustundir. Þátttakendur greiða hluta kostnaðar við það námskeið eða 11 þúsund krónur.

„Það eru mörg spennandi námskeið framundan. Ég vil nefna sívinsæl gróðurnámskeið Auðar I. Ottesen garðyrkjufræðings og fjármálanámskeið Björns Berg Gunnarssonar. Einnig verðum við með saumanámskeið, námskeið um hagsýni við heimilisreksturinn, námskeið um svefn og námskeið um hormónaheilsu á miðjum aldri. Svona gæti ég lengi haldið áfram að telja. Námskeiðin er fjölmörg og spanna afar vítt svið og er lýsingu á þeim og skráningu að finna hér á heimasíðu SÍMEY.
Þá vil ég nefna að í byrjun apríl verður boðið upp á dyravarðanámskeið í samstarfi við Einingu-Iðju og Lögregluna á Akureyri. Þessi námskeið hafa alltaf verið vel sótt og nú þegar eru komnar margar skráningar á það,“ segir Þórdís Gísladóttir verkefnastjóri í SÍMEY.