Myndlistarsýning í minningu Billu

Sýningin verður í Deiglunni og Mjólkurbúðinni í Listagilinu.
Sýningin verður í Deiglunni og Mjólkurbúðinni í Listagilinu.

Næstkomandi föstudag, 10. nóvember, verður opnuð myndlistarsýning í Deiglunni og Mjólkurbúðinni í Listagilinu á Akureyri til heiðurs Billu – Bryndísi Arnardóttur sem kenndi um árabil í SÍMEY námskeiðið Fræðsla í formi og lit á móti Guðmundi Ármanni Sigurjónssyni myndlistarmanni. Billa lést 1. ágúst 2022 62 ára að aldri.

Það eru nemendur Billu á námskeiðunum í SÍMEY sem standa fyrir sýningunni og sýna verk sín. Hugmyndina að sýningunni átti myndlistarhópurinn „Gellur sem mála í bílskúr“ sem í er myndlistarfólk sem sótti sína þekkingu í myndlist til Billu og Guðmundar Ármanns á námskeiðunum „Fræðsla í formi og lit“ í SÍMEY. Hópurinn fékk styrk í þetta verkefni frá Norðurorku og KEA. Leitað var til annarra námshópa úr SÍMEY og í kjölfarið fór boltinn að rúlla. Og nú er komið að sýningunni. Listrænn stjórnandi hennar er samstarfsmaður og vinur Billu, Guðmundur Ármann. Ekki aðeins unnu þau náið saman í SÍMEY, þau áttu einnig ríkan þátt í að byggja upp listnámsbraut við VMA.

Þá hafa aðstandendur Billu stofnað Minningarsjóð Bryndísar Arnardóttur og rennur helmingur söluandvirðis myndanna á sýningunni í hann. Fjármunum sjóðsins skal varið til að styrkja konur á sviði sjónlista.

Sýningin verður opnuð föstudaginn 10. nóvember kl. 16 með ávarpi og léttum veitingum. Allir eru hjartanlega velkomnir. Sýningin verður einnig opin frá kl. 14 til 17 laugardaginn 11. nóvember og sunnudaginn 12. nóvember.

Árið 2013 hóf Billa að bjóða upp á myndlistarnámskeiðin í SÍMEY fyrir 20 ára og eldri – í samræmi við markmið símenntunarstöðva - og skrifaði hún námsskrár fyrir námið sem voru síðan samþykktar af mennta- og menningarmálaráðuneytinu.

Billa lærði við Koninkliijke Akademi voor Beelende Kunsten í Mechelen í Belgíu 1978-1979 og lauk eftir það B.Fa. frá málaradeild Myndlistaskólans á Akureyri  árið 1986. Einn kennara Billu í Myndlistaskólanum var einmitt Guðmundur Ármann. Síðan lauk Billa B.Ed. prófi í uppeldis- og kennslufræði við Kennaraháskólann árið 1992, diplómanámi í kennslufræði frá HA árið 2007 og M.Ed. árið 2009 frá sama skóla.

Nær samfellt frá árinu 1998 til 2013 var Billa myndlistar- og listasögukennari við listnámsbraut VMA. Hún stofnaði síðan eigið fyrirtæki, Listfræðsluna, og kenndi myndlist á námskeiðum í SÍMEY. Þá kenndi hún í mörg ár við University of Central Florida í Bandaríkjunum.