Alvöru bókhaldsnámskeið

Markmið okkar með Alvöru Bókhaldsnámskeiðinu er að veita nemendum góða þekkingu og þjálfun í ýmsum verkefnum sem koma fyrir í nútíma bókhaldsvinnu. Þannig verða þeir ekki aðeins færir um að mæta breyttum kröfum síðustu ára heldur geta einnig tekið virkan þátt í þeim nýjungum sem framundan eru.

Til að ná þessu marki höfum við lagt sérstaka áherslu á:
Að námsefnið sé raunhæft
Að kennarar hafi góð tengsl við atvinnulífið
Að faglegum og nútímalegum vinnubrögðum sé beitt við námið

Námsefnið er samfelld röð raunverulegra fylgiskjala og speglar þar af leiðandi eingöngu raunverulega atburði og færslur, að skattframtali. Eftir merkingu fylgiskjalanna eru þau tölvufærð.
Bókhaldsnámskeiðið er ætlað öllum þeim, sem vilja ná góðum tökum á daglegri bókhaldsvinnu, t.d. sjálfstæðum atvinnurekendum og þeim sem vinna við bókhald. Á námskeiðinu fá nemendur innsýn í alla algengustu þætti daglegrar bókhaldsvinnu.

Markmið námskeiðsins er að nemendur:
Fái góðan skilning á helstu hugtökum fjárhagsbókhalds
Verði færir um að merkja og flokka öll algeng fylgiskjöl t.d. vörukaup, húsaleigu, símkostnað, þjónustugjöld banka og FIT-kostnað
Verði færir um að vinna ýmsar upplýsingar úr bókhaldskerfinu
Kunni skil á sjóðbókarfærslum
Læri að ganga frá uppgjöri og skilum virðisaukaskatts
Læri undirstöðuatriði launaútreiknings og færslur hans í dagbók
Læri að stemma af dagbókarlykla eftir hreyfingalistum og færa nauðsynlegar leiðréttingar
Geti undirbúið uppgjör fyrirtækis
Tileinki sér fagleg vinnubrögð við bókhald

Að námi loknu eiga þátttakendur að vera mjög vel færir um að sjá um bókhald smærri fyrirtækja.

Lengd: 75 klukkustundir, 25 skipti
Forkröfur náms: Engar
Námsmat: Munnleg endurgjöf frá kennara
Kennari: Óskar Steingrímsson
Staðsetning:SÍMEY Þórsstíg 4
Hvenær: Þriðjudagar og fimmtudagar 19:00-22:00. Hefst 17. september

Meira