Vetrarforði - grænmetisuppskeran - Vefnámskeið

Flokkur: námskeið

Á námskeiðinu eru skoðaðar leiðir til að nýta sér uppskeruna og aðferðir til að geyma grænmeti. Farið yfir ótal aðferðir til að geyma og gera sér mat úr grænmetisuppskerunni. Skoðað hvaða grænmetistegundir eru kuldþolnari en aðrar og geta verið lengur í beði á haustinn. Farið yfir geymslu í útigeymslu, bílskúrnum og kæli. Kennt að sjóða niður grænmeti og farið yfir gerjað grænmeti. Nokkrar uppskriftir af súrkáli fylgja með og í lok námskeiðsins er farið yfir gerð kryddolía.

Leiðbeinandi: Auður I. Ottesen garðyrkjufræðingur og ritstjóri Sumarhússins og garðsins

 

Athugið að félagsmenn í stéttarfélögunum Eining Iðja, Kjölur og Sameyki sækja námskeiðið sér að kostnaðarlausu. 

Athugið að námskeiðin eru öllum opin og minnum við aðra en félagsmenn þessara félaga á að kanna rétt sinn hjá sínu stéttarfélagi.

Vinsamlega athugið að námsgjöld eru óafturkræf eftir að frestur til að segja sig frá námi rennur út. Berist umsókn til okkar innan tveggja sólarhringa áður en námskeið hefst verður námskeiðsgjaldið gjaldfært strax og námsgjöld þar af leiðandi óafturkræf.

Frestur til úrsagnar úr námskeiðinu er allt að 48 klukkustundum áður en námskeiðið hefst.  

Hafi skrifleg úrsögn ekki borist fyrir þann tíma, verða námsgjöld innheimt að fullu (sjá greiðsluskilmála SÍMEY) 

Ef þú vilt hætta við umsókn og koma í veg fyrir að námsgjöld verði innheimt, smelltu þá hér áður en fresturinn rennur út, fylltu út formið og sendu til okkar.

Heiti námskeiðs Dags Dagar Tími Staðsetning Verð