Vellíðan í vatni

Flokkur: Nám fyrir fólk með fötlun

 

Námskeiðið er fyrir einstaklinga með mikið skerta hreyfigetu.  Við sköpum notalega stemmningu í heita pottinum með tónlist, mildri birtu og rólegu umhverfi, þar sem reynt er að forðast öll utanaðkomandi áreiti. Þátttakandi fær einstaklingmiðaða hreyfiþjálfun sem byggir á trausti milli þátttakanda og leiðbeinanda.  Auk hreyfiþjálfunar er lögð mikil áhersla á slökun og vellíðan.  Þátttakendur fá nudd og kennslu í öndunartækni til að dýpka slökun.  Þátttakendur læra að fljóta í vatninu án aðstoðar eða stuðnings leiðbeinanda með það að markmiði að fá að upplifa frelsið við að hafa stjórn á eigin líkama.

Leiðbeinandi: Sigrún Olsen og henni til aðstoðar er Álfheiður MAren Pálsdóttir

Fjöldi skipta: 8 skipti, 30-45 mínútur í pottinum

Leiðbeinandi verð: 25.000 kr. 

 

Við bendum umsækjendum á að athuga möguleika á styrkveitingum hjá stéttarfélagi sínu eða hjá Akureyrarbæ, sjá upplýsingar hér.

Frekari upplýsingar er hægt að fá hjá Jónínu verkefnastjóra náms fólks með fötlun, jonina@simey.is

Heiti námskeiðs Dags Dagar Tími Staðsetning Verð Skráning
Vellíðan í vatni 30. sep. - 01. des. Ákveðið í samráði við kennara og nemendur Giljaskóli 25.000 kr. Skráning