Velferðarsvið Akureyrarbæjar 2025

Flokkur: Velferðarsvið Akureyrarbæjar

 

Sjá nánari lýsingar og skráningarhlekki hér fyrir neðan: 

Skyndihjálparnámskeið

12 klst skyndihjálparnámskeið:

23.-25. september: https://umsokn.inna.is/#!/login/1178/707933 

4 klst skyndihjálparnámskeið:

9. okt: https://umsokn.inna.is/#!/login/1178/707515 

13. okt: https://umsokn.inna.is/#!/login/1178/707516 

2. desember: https://umsokn.inna.is/#!/login/1178/707518  

 

Viðtalstækni

7.nóvember kl. 9:00-12:00

Staðkennt í SÍMEY

Námskeið fyrir starfsfólk barnaverndar og félagsþjónustu. Á námskeiðinu er farið yfir það hvernig er unnt að vinna traust undir erfiðum kringumstæðum. Einnig verður fjallað um að setja mörk og halda þeim án þess að glata trausti.

Leiðbeinandi: Freydís Jóna Freysteinsdóttir, prófessor í félagsráðgjafardeild við Háskóla Íslands.

Skráning hér: https://umsokn.inna.is/#!/login/1178/707510 

 

Greinargerðir og skýrslugerð

28. október kl 9:30-11:30

Staðkennt í SÍMEY

Námskeiðið fjallar um ritun skýrslna og greinargerða.

Farið verður í uppsetningu skýrslna og hvers þarf að gæta við skráningu upplýsinga, s.s. vegna trúnaðar og persónuverndar. Hvað þarf að koma fram og hvernig skal setja fram þær upplýsingar sem þörf er á. Hafa þarf í huga að það gæti þurft að nota gögnin utan velferðarsviðs, s.s. fyrir umdæmisráði, dómstólum, eftirlitsstofnunum eða öðrum stofnunum. Þá þarf jafnframt að hafa í huga að aðilar eiga rétt á að fá gögnin og því mikilvægt að þau séu skýr og innihaldi allar nauðsynlegar upplýsingar.

Leiðbeinandi: Júlí Ósk Antonsdóttir og Halldóra Hauksdóttir

Skráning hér: Umsóknarvefur

 

Geðsjúkdómar

23. október kl. 9:00-12:00

Námskeið fyrir starfsólk búsetuþjónustu, stoð- og stuðningsþjónustu og félagsþjónustu. 

Farið yfir algengustu geðsjúkdóma, einkenni þeirra og praktískar leiðir til að vinna með einstaklingum sem þjást af þessum sjúkdómum.

Leiðbeinandi: Gísli Kort Kristófersson

Skráning hér: Umsóknarvefur

 

Sjálfsvarnarnámskeið

Námskeið fyrir starfsfólk velferðarsviðs Akureyrarbæjar. Farið verður yfir grunntækni í sjálfsvörn. Námskeiðið er haldið í Atlantic Jiu Jitsu. Reynslumiklir kennarar og vel útbúinn salur. 

 

24. nóvember kl. 19:00-21:00

Skráning hér: Umsóknarvefur

 

4. desember kl. 14:00-16:00

Skráning hér: Umsóknarvefur

Haustönn2025 fyrirtækjaskólar