Tæknilæsi og tölvufærni - fjarnám

Flokkur: Lengra nám

Markmið námsins er að auka tæknifærni þátttakenda, sem og að efla hæfni þeirra og trú á eigin getu til að takast á við breytingar og tækniframfarir í atvinnulífinu.

Að loknu námi hafa þátttakendur aukið færni og þekkingu í upplýsingatækni og tölvunotkun, og þannig styrkt stöðu sína á vinnumarkaði til framtíðar.

Námið samanstendur af sex áföngum:

  • Fjarvinna og fjarnám
  • Sjálfvirkni og gervigreind
  • Skýjalausnir
  • Stýrikerfi
  • Tæknilæsi og tölvufærni

 

Fyrirkomulag: Námið hefst 19. október. Um er að ræða allt að 10 vikna nám sem kennt verður fjarnámi. Fyrsti tími byrjar á vinnustofu á netinu 19. október kl 16:30.
Önnur vinnustofa verður síðan á netinu 2.-3. nóvember. Þátttakendur fá tvö myndbönd í viku hverri og leysa verkefni vikulega.*

*Birt með fyrirvara um breytingar

Leiðbeinandi: Snæbjörn Sigurðarson, en hann hefur ríflega 20 ára reynslu af tæknikennslu

 

Hafið samband við Helenu (helena@simey.is) eða Andreu (andrea@simey.is) fyrir frekari upplýsingar um námið

Verð: 20.700 kr (með fyrirvara um breytingu á verðskrá fræðslusjóðs).
Vinsamlega athugið að námsgjöld eru óafturkræf eftir að frestur til að segja sig frá námi rennur út.

Frestur til úrsagnar úr lengri námsleiðum er 14 dagar frá skráningu. Sjá greiðsluskilmála.

Smellið hér til að skrá ykkur úr námi.

Ekki gleyma að kanna möguleikana á styrkjum hjá stéttarfélögum ykkar og fræðslusjóðum!

Haustönn 2026