Leikskólaliða- og stuðningsfulltrúabrú

Flokkur: Lengra nám

Nám í stuðningsfulltrúa- og leikskólaliðabrú er fyrir ófaglærða starfsmenn í leik- og grunnskólum. 

Námið er samtals 66 einingar sem kenndar eru á fjórum önnum. Nemendur útskrifast sem leikskólaliðar og/eða stuðningsfulltrúar að námi loknu.

Innihald námsins er félags-, sál- og uppeldisgreinar sem og sérgreinar á sviði kennslufræði.

 

Forkröfur í námið eru að nemendur hafi náð 22ja ára aldri, hafi 3ja ára starfsreynslu við uppeldi og umönnun barna í leik- og grunnskólum og hafi lokið 230 kennslustunda starfstengdum námskeiðum. Þátttakendum er boðið upp á raunfærnimat í upphafi náms, sem getur þá komið til styttingar á náminu.

 

Fyrirkomulag náms: Námið er byggt þannig að hver áfangi er kenndur í fjórar til fimm vikur í senn. Hver áfangi hefst með 4 klst staðlotu og í kjölfarið fer námið fram á netinu í vendikennslu. Athugið að mikilvægt er að mæta í staðlotu svo að námið gangi vel fyrir sig. Allir fyrirlestrar eru teknir upp fyrirfram og aðgengilegir námsmönnum í gegnum netið. Námsmenn hafa aðgengi að kennara í vinnustofum á mánudögum og/eða miðvikudögum milli kl. 17:00 - 20:00 í gegnum netið eða í SÍMEY. Þar geta nemendur fengið aðstoð og leiðsögn við gerð verkefna frá kennara. Þar fyrir utan er nemendum frjálst að nýta sér aðstöðuna í SÍMEY og hafa þar aðgengi að ráðgjöfum og verkefnastjórum.

Námsmat: Námsárangur er metinn með símati, þ.e. nemandi skilar inn verkefnum sem metin eru til einkunna og er einkunn gefin í tölustöfum. Hægt er að fá hluta áfanga metna í gegnum raunfærnimat og biðjum við þá sem þess óska að hafa samband við umsjónarmenn námsins, Helenu (helena@simey.is) eða Helga (helgis@simey.is).

 

Fög kennd á vorönn 2024

  • Kynjafræði - Hefst 17. janúar kl. 17 - 20. Vinnustofur á miðvikudögum kl. 17:00 - 20:00 frá 17. janúar - 7. febrúar.
  • Uppeldisfræði 2 - Hefst 10. febrúar kl. 09:00 - 12:00. Vinnustofur á miðvikudögum kl. 17:00 - 20:00 frá 14. febrúar til 13. mars.
  • Þroskasálfræði - Hefst 16. mars kl. 09:00 - 12:00. Vinnustofur á miðvikudögum kl. 17:00 - 20:00 frá 20. mars - 24. apríl.
  • Kennslustofan og nemandinn - Hefst 20. apríl kl. 09:00 - 12:00. Vinnustofur kl. 17:00 - 20:00 mánudaginn 22. apríl og svo á miðvikudögum frá 1. maí til 22. maí.

 

Leikskólaliða- og stuðningsfulltrúabrú samanstendur af eftirtöldum fögum (með því að smella á hvert fag má lesa sér til um námsmarkmið):

Fatlanir 2A05
Hegðun og atferlismótun 2A05
Leikur sem náms- og þroskaleið 2A05
Íslenskar barnabókmenntir 2C05
Skapandi starf 1A05
Samskipti og samstarf 1A05
Þroskasálfræði 3A05
Gagnrýnin hugsun og siðfræði 2A05
Upplýsingatækni 1A05

Kynjafræði 2A05
Skyndihjálp 2A01
Uppeldisfræði 2A05 og 3A05
Þroski og hreyfing 2A05
Kennslustofan og nemandinn 2A05

 

Verð: 44.500,- hver önn (með fyrirvara um breytingu á verðskrá fræðslusjóðs).

Vinsamlega athugið að námsgjöld eru óafturkræf eftir að frestur til að segja sig frá námi rennur út. 

Frestur til úrsagnar úr lengri námsleiðum er 14 dagar frá dagsetningu umsóknar.  

Hafi skrifleg úrsögn ekki borist innan 14 daga eftir að umsókn var send inn, verða námsgjöld innheimt að fullu (sjá greiðsluskilmála SÍMEY) 

Ef þú vilt hætta við umsókn og koma í veg fyrir að námsgjöld verði innheimt, smelltu þá hér áður en 14 daga fresturinn rennur út, fylltu út formið og sendu til okkar.

Ekki gleyma að kanna möguleikana á styrkjum hjá stéttarfélögum ykkar og fræðslusjóðum !

Haustönn 2024