Skyndihjálp - 4 tímar

Flokkur: HSN

Þetta námskeið er aðeins ætlað HSN

Markmið: Að þátttakendur öðlist grunnfærni í að beita skyndihjálp og sálrænum stuðningi í neyðartilvikum.

Undirstöðuatriði: Streita í neyðartilfellum, tilfinningarleg viðbrögð eftir að hafa veitt skyndihjálp, sálrænn stuðningur og að forðast sýkingar. 
Fjögur skref skyndihjálpar; tryggja öryggi á vettvangi, meta ástand slasaðra eða sjúkra, sækja hjálp og veita skyndihjálp. 

Grunnendurlífgun og sjálfvirkt hjartastuð: Að athuga viðbrögð, að opna öndunarveg, að athuga öndun, hjartahnoð og blástursaðferð, sjálfvirkt hjartastuð (AED), endurlífgunarkeðjan, hliðarlega og losun aðskotahlutar úr öndunarvegi.  
Skyndihjálp: Stutt umfjöllun um innvortis- og útvortis blæðingar, bruni, höfuðhögg, brjóstverkur (hjartaáfall), bráðaofnæmi og heilablóðfall. 

Leiðbeinendur: Rauði kross Íslands

Staðsetning: SÍMEY, Þórsstíg 4 

Tímasetning: 9. september kl 12:00-16:00, 11.september 9:00-13:00

Heiti námskeiðs Dags Dagar Tími Staðsetning Verð Skráning
Skyndihjálp 4 tímar eftir hádegi 09. sep. miðvikudagur 12:00-16:00 SIMEY Þórsstíg 4 Skráning
Skyndihjálp - 4 tímar (fyrir hádegi) 11. sep. Föstudagur 09:00-13:00 SÍMEY Þórsstíg 4 Skráning