Þetta námskeið er aðeins ætlað starfsfólki HSN
Námskeiðið er ætlað öllum þeim sem vilja læra skyndihjálp og endurlífgun og öðlast þekkingu og góða færni í að veita nærstöddum aðstoð í bráðatilfellum. Námskeið fyrir þá sem vilja gefa sér góðan tíma í að læra skyndihjálp s.s. almenning, sjálfboðaliða í skyndihjálparhópum Rauða krossins og nemendur sem fá einingu fyrir að taka skyndihjálparnámskeið.
Markmið:
Að auka þekkingu og færni þátttakenda í að beita á öruggan hátt einföldum aðferðum í skyndihjálp.
Að auka færni í að meta einkenni algengra sjúkdóma og áverka.
Viðfangsefni
Kynning; hvað er skyndihjálp?
Undirstöðuatriði; streita í neyðartilfellum, tilfinningarleg viðbrögð eftir að hafa veitt skyndihjálp, sálrænn stuðningur og að forðast sýkingar.
Fjögur skref skyndihjálpar; tryggja öryggi á vettvangi, meta ástand slasaðra eða sjúkra, sækja hjálp og veita skyndihjálp.
Grunnendurlífgun og sjálfvirkt hjartastuð; að athuga viðbrögð, að opna öndunarveg, að athuga öndun, hjartahnoð og blástursaðferð, sjálfvirkt hjartastuð (AED), endurlífgunarkeðjan, hliðarlega og losun aðskotahlutar úr öndunarvegi.
Eftir að hafa setið námskeiðið fá þátttakendur viðurkenningu frá Rauða krossinum á Íslandi og velferðarráðuneytinu. Mælt er með endurmenntun annað hvert ár.
Leiðbeinandi: Aðili frá RKÍ
Kennsludagar: 24. og 25. mars frá kl 8:00-14:00
Staðsetning: SÍMEY, Þórsstíg 4
| Heiti námskeiðs | Dags | Dagar | Tími | Staðsetning | Verð | Skráning |
|---|---|---|---|---|---|---|
| Skyndihjálp 12 klst (Grunnnámskeið) | 24. sep. - 25. sep. | Fimmtudagur og föstudagur | 8:00-14:00 | SIMEY, Þórsstíg 4 | Skráning |