Tæknilæsi og Tölvufærni -FJARNÁM-

Flokkur: Lengra nám

Tæknilæsi og tölvufærni er nám fyrir einstaklinga sem eiga erfitt með að halda í við þær breytingar sem ör tækniþróun hefur á störf og daglegt líf.  Markmið námsins er að auka tæknilæsi og tölvufærni þátttakenda og gera þá betur í stakk búna til að halda í við tækniframfarir í starfi og leik. Í náminu verður megináhersla lögð á að efla sjálfstraust þátttakenda gagnvart tækni og tölvum. Skilningur á grunnþáttum tölva er efldur og grunnhæfni í notkun tölva og snjalltækja verður þjálfuð.  

ATH. Skilyrði til að taka þátt í þessu námskeiði er að þátttakandi hafi aðgengi að viðeigandi búnaði og að hann sé í lagi.  SÍMEY mun heimsækja viðkomandi áður en nám hefst og tryggja að þátttakandi sé fær um að stunda námið í fjarnámi. 

Námskeiðið er frítt fyrir fólk í atvinnuleit.

Fólk í atvinnuleit, vinsamlegast veljið "Annað" sem greiðsluleið.

Heiti námskeiðs Dags Dagar Tími Staðsetning Verð Skráning