Sjálfsmynd og samskipti - vefnámskeið

Flokkur: námskeið

Við skoðum sjálfsmyndina í dýpt: hvað hún er, hvort hún sé eitthvað eitt og óbreytt, hvaðan hún kemur og hvað mótar hana, hvað viðheldur henni eða breytir henni – og hvaða áhrif hún hefur á líf okkar og líðan. Við horfum einnig á samskiptin: hvernig við samskiptum við okkur sjálf og við aðra, hvað hefur áhrif á samskiptastíl okkar, og hvort við hlustum til að hlusta og skilja – eða einungis til að svara. Við kynnum okkur mismunandi samskiptastíla og hvað þeir þýða í reynd.

 

Hvar og hvenær: 7. október kl 17:00-19:00

Leiðbeinandi: Ingibjörg Þórðardóttir, klínískur félagsráðgjafi.

Ingibjörg er klínískur félagsráðgjafi og er stofnandi og eigandi Hugrekkis, ráðgjafar og fræðslu, og hefur starfað á sviði félagsráðgjafar og fræðslu í meira en tvo áratugi.

Ingibjörg hefur víðtæka reynslu af samtalsmeðferð, hópvinnu og fræðslu – meðal annars á sviði áfalla, ofbeldis og mannlegra samskipta. Hún hefur starfað sem stundakennari við Háskólann á Akureyri, tekið þátt í alþjóðlegum verkefnum og birt fræðigreinar í ritrýndum tímaritum. Hún hefur einnig lokið þjálfun í TRM – Trauma Resilience Model – sem er gagnreyndur aðferðafræðilegur rammi við úrvinnslu áfalla.

Athugið að aðilar í stéttarfélögunum Eining Iðja, Kjölur og Sameyki ásamt stéttarfélögum sem eru aðilar að Iðunni sækja námskeiðið sér að kostnaðarlausu. Námskeiðin eru öllum opin og minnum við aðila í öðrum stéttarfélögum að kanna rétt sinn hjá sínu félagi.

Vinsamlega athugið að námsgjöld eru óafturkræf eftir að frestur til að segja sig frá námi rennur út. Berist umsókn til okkar innan tveggja sólarhringa áður en námskeið hefst verður námskeiðsgjaldið gjaldfært strax og námsgjöld þar af leiðandi óafturkræf.Frestur til úrsagnar úr námskeiðinu er allt að 48 klukkustundum áður en námskeiðið hefst. Hafi skrifleg úrsögn ekki borist fyrir þann tíma, verða námsgjöld innheimt að fullu (sjá greiðsluskilmála SÍMEY) Ef þú vilt hætta við umsókn og koma í veg fyrir að námsgjöld verði innheimt, smelltu þá hér áður en fresturinn rennur út, fylltu út formið og sendu til okkar.

Heiti námskeiðs Dags Dagar Tími Staðsetning Verð Skráning
Sjálfsmynd og samskipti 07. okt. Miðvikudagur 17:00-19:00 Vefnámskeið 22.900 kr. Skráning