Sigraðu streituna

Flokkur: námskeið

Streita, kulnun eða sjúkleg streita. Þátttakendur fá verkfæri til að greina streitu og læra aðferðir henni til forvarnar og úrlausna. Kynnt verða ný hugtök úr streitufræðum eins og til að mynda daghvíld á vinnustað. Farið verður í viðurkenndar aðferðir sem stuðla að slökun á vinnutíma.

Leiðbeinandi:Helga Hrönn Óladóttir, mannauðsfræðingur og streituráðgjafi. Heilsuvernd

Vefnámskeið

Hvar og hvenær: 12. mars klukkan 18:00

Verð: 23.900 kr

 

Athugið að aðilar í stéttarfélögunum Eining Iðja, Kjölur og Sameyki ásamt stéttarfélögum sem eru aðilar að Iðunni sækja námskeiðið sér að kostnaðarlausu. Námskeiðin eru öllum opin og minnum við aðila í öðrum stéttarfélögum að kanna rétt sinn hjá sínu félagi.

Vinsamlega athugið að námsgjöld eru óafturkræf eftir að frestur til að segja sig frá námi rennur út. Berist umsókn til okkar innan tveggja sólarhringa áður en námskeið hefst verður námskeiðsgjaldið gjaldfært strax og námsgjöld þar af leiðandi óafturkræf.Frestur til úrsagnar úr námskeiðinu er allt að 48 klukkustundum áður en námskeiðið hefst. Hafi skrifleg úrsögn ekki borist fyrir þann tíma, verða námsgjöld innheimt að fullu (sjá greiðsluskilmála SÍMEY) Ef þú vilt hætta við umsókn og koma í veg fyrir að námsgjöld verði innheimt, smelltu þá hér áður en fresturinn rennur út, fylltu út formið og sendu til okkar.

Heiti námskeiðs Dags Dagar Tími Staðsetning Verð Skráning
Sigraðu streituna 12. mar. fimmtudagur 18:00-20:00 vefnámskeið 23.900 kr. Skráning