KVAN - Samskipti milli ólíkra kynslóða - vefnámskeið

Flokkur: námskeið

Samskipti milli ólíkra kynslóða – KVAN

Skemmtilegur fyrirlestur sem fjallar um samskipti milli kynslóða og árangursríkar leiðir til að skilja og bera virðingu fyrir yngri og eldri kynslóðum.

Hvað er líkt og ólíkt með okkar kynslóð og þeirra sem við störfum með?

Fyrirlestur sem fjallar almennt um samskipti og hjálpar starfsfólki á vinnustöðum að skilja hvernig hver kynslóð nálgast hlutina á ólíkan og misjafnan hátt.

Skilningur á kynslóðabili eflir starfsanda og góða vinnustaðamenningu.

Fyrirlesari er Anna Steinsen sem nálgast efnistökin á skemmtilegan og jákvæðan hátt, með húmorinn að leiðarljósi.

Verð: 19.900

Tímasetning: 1. október kl. 17:00-18:00

 

Athugið að aðilar í stéttarfélögunum Eining Iðja, Kjölur og Sameyki ásamt stéttarfélögum sem eru aðilar að Iðunni sækja námskeiðið sér að kostnaðarlausu. Námskeiðin eru öllum opin og minnum við aðila í öðrum stéttarfélögum að kanna rétt sinn hjá sínu félagi.

Vinsamlega athugið að námsgjöld eru óafturkræf eftir að frestur til að segja sig frá námi rennur út. Berist umsókn til okkar innan tveggja sólarhringa áður en námskeið hefst verður námskeiðsgjaldið gjaldfært strax og námsgjöld þar af leiðandi óafturkræf.Frestur til úrsagnar úr námskeiðinu er allt að 48 klukkustundum áður en námskeiðið hefst. Hafi skrifleg úrsögn ekki borist fyrir þann tíma, verða námsgjöld innheimt að fullu (sjá greiðsluskilmála SÍMEY) Ef þú vilt hætta við umsókn og koma í veg fyrir að námsgjöld verði innheimt, smelltu þá hér áður en fresturinn rennur út, fylltu út formið og sendu til okkar.

Heiti námskeiðs Dags Dagar Tími Staðsetning Verð Skráning
Samskipti milli ólíkra kynslóða 01. okt. Fimmtudagur 17:00-18:00 Vefnámskeið 19.900 kr. Skráning