Sálræn áföll - vinnumarkaður

Flokkur: námskeið

Sálræn áföll - vinnumarkaður -  3 klst staðnámskeið  - skráning hefst í byrjun ágúst

Leiðbeinandi:  Sigrún Sigurðardóttir dósent við HA.   

Á námskeiðinu verður fjallað um hvað gerist þegar einstaklingar verða fyrir sálrænu áfalli t.d. í tengslum við atvinnu sína eða þegar vinnuaðstæður hafa mikið breyst. Jafnframt verður fjallað um hvaða leiðir eru færar til að takast á við áföll. Fjallað verður um helstu skilgreiningar, forvarnir, einkenni sem geta komið fram og líkamlegar, sálrænar og félagslegar afleiðingar.   

Farið verður yfir þær leiðir sem einstaklingar geta valið til úrvinnslu og meðferðar. Fjallað er um áhrif sálrænna áfalla á samfélagið og skoðað er hvað fellst í áfallamiðaðri nálgun og þjónustu.  

Eftir námskeiðið munu þátttakendur:   

  • Þekkja skilgreiningar og einkenni hjá einstaklingum sem hafa orðið fyrir áföllum.   

  • Þekkja afleiðingar áfalla fyrir heilsufar og líðan og getur þannig brugðist við í starfi og leik.   

  • Hafa þekkingu á því hvernig má nálgast einstaklinga eftir áföll.  

Verð:  19.300 kr.  

Staður og tími: Þriðjudagur 17. nóvember frá kl. 13-16 

 

*Félagsmenn í stéttarfélaginu Eining Iðja  athugið, starfsmenntasjóðirnir Landsmennt, Ríkismennt og Sveitamennt greiða námskeiðsgjaldið að fullu fyrir félagsmenn í Einingu Iðju. 

*Aðilar að Iðunni eiga rétt á 75% niðurgreiðslu á námskeiðið og geta skráð sig á www.idan.is. 

Athugið að námskeiðið er opið öllum og minnum við aðra en félagsmenn þessara félaga á að kanna rétt sinn hjá sínu stéttarfélagi.

Heiti námskeiðs Dags Dagar Tími Staðsetning Verð