Ertu með hugmynd að fyrirtæki, ertu þegar með eigin rekstur eða vinnur þú við markaðsmál? Þá er þetta nám fyrir þig!
Markmið Rekstrar- og frumkvöðlanáms er að þú fáir þekkingu, færni og verkfæri til að byggja upp rekstur og taka hugmyndina þína alla leið, frá hugmynd til framkvæmdar.
Í náminu kynnist þú hugsunarhætti frumkvöðla og færð tækifæri til að vinna með eigin hugmynd á hagnýtan hátt. Þú lærir að kanna markaðinn, kynnast væntanlegum viðskiptavinum og meta hvort hugmyndin eigi erindi. Þú lærir líka að setja upp áætlanir í töflureikni, halda utan um verkefni og fylgjast með lykiltölum og lausafé svo reksturinn standi traustum fótum.
Í lok námsins hefur þú sett saman þína eigin viðskiptaáætlun og öðlast færni í samningatækni sem nýtist bæði í samskiptum við viðskiptavini, samstarfsaðila og fjármögnunaraðila. Námið má meta til 9 framhaldsskólaeininga.
Námsþættir:
Námið hefst 11. janúar, því lýkur 9. júní og er allt kennt í fjarnámi. Fyrirlestrar eru birtir þrisvar í viku, á mánudögum, miðvikudögum og föstudögum. Þú horfir á fyrirlestrana þegar þér hentar og vinnur verkefni út frá þeim.
Námsmat byggist á verkefnum sem lögð eru fyrir yfir námstímann. Farið er yfir verkefnin á sérstökum verkefna- og umræðudögum, sem eru nær alltaf á fimmtudögum, frá klukkan 17:00 til 18:00, og fer það einnig fram í gegnum netið.
Útbúnaður: Til að taka þátt í náminu þarftu að hafa aðgengi að tölvu með nettengingu og annað hvort Excel eða Google Sheets (frítt á netinu).
Verð: 59.100 kr.
(með fyrirvara um breytingu á verðskrá fræðslusjóðs)
Ekki gleyma að kanna möguleikana á styrkjum hjá stéttarfélögum og fræðslusjóðum!
Ertu óviss um hvort námið henti þér? Náms- og starfsráðgjöf SÍMEY stendur öllum til boða og er alltaf gjaldfrjáls. Nánari upplýsingar veita umsjónarmenn námsins, Helena (helena@simey.is) eða Andrea (andrea@simey.is).

Námskráin í heild: NAMSLEID_Rekstrar-og-frumkvodlanam-Fra-hugmynd-til-framkvaemdar-3-juli-lok-vthe.pdf
Vinsamlega athugið að námsgjöld eru óafturkræf eftir að frestur til að segja sig frá námi rennur út.
Frestur til úrsagnar úr lengri námsleiðum er 14 dagar frá skráningu. Sjá greiðsluskilmála.
Smellið hér til að skrá ykkur úr námi.
Markhópur símenntunarmiðstöðva eru einstaklingar sem hafa litla formlega skólagöngu að baki, þ.e. hafa ekki lokið stúdentsprófi, iðnnámi eða sambærilegu námi. Einnig einstaklingar sem hafa lokið námi erlendis, sem ekki er viðurkennt á Íslandi. Þessir einstaklingar hafa forgang í námið en öllum er velkomið að sækja um.