Farið er fyrir handhæg ráð sem gera alla að sérfræðingum í inniræktun.
Á námskeiðinu er farið yfir árangursríkustu aðferðirnar í inniræktun nytjaplantna.
Hvaða gerðir af lýsingu sé best að nota, hvernig plöntur er hentugast að velja til inniræktunar og hvaða rými henta best til þeirrar ræktunar.
Leiðbeinandi: Auður I. Ottesen. Auður er garðyrkjufræðingur af garðplöntubraut og vann við ræktun pottaplantna í áravís.
Athugið að aðilar í stéttarfélögunum Eining Iðja, Kjölur og Sameyki ásamt stéttarfélögum sem eru aðilar að Iðunni sækja námskeiðið sér að kostnaðarlausu. Námskeiðin eru öllum opin og minnum við aðila í öðrum stéttarfélögum að kanna rétt sinn hjá sínu félagi.
Heiti námskeiðs | Dags | Dagar | Tími | Staðsetning | Verð | Skráning |
---|---|---|---|---|---|---|
Ræktað undir ljósi - Vefnámskeið | 23. okt | Miðvikudagur | 17.00-18.30 | Vefnámskeið á ZOOM | 13.900 kr. | Skráning |