Pörun á kaffi og súkkulaði

Flokkur: námskeið

Kaffi og súkkulaði pörun

Bragðlaukaveisla fyrir sælkera

Vala Stef frá Korg kaffibrennslu parar saman súkkulaði við hágæða kaffi.

Í þessari pörun verður farið yfir hvernig kaffi og súkkulaði verður til.

Hvernig upplifum við bragð.

Passar súkkulaði og kaffi saman? Fjallað er um bragðupplifun og bragðskynjun.

Leiðbeinandi: Vala Stef

Verð: 19.900kr

Staðnámskeið, SÍMEY, Þórsstíg 4.

Athugið að aðilar í stéttarfélögunum Eining Iðja, Kjölur og Sameyki ásamt stéttarfélögum sem eru aðilar að Iðunni sækja námskeiðið sér að kostnaðarlausu. Námskeiðin eru öllum opin og minnum við aðila í öðrum stéttarfélögum að kanna rétt sinn hjá sínu félagi.

Vinsamlega athugið að námsgjöld eru óafturkræf eftir að frestur til að segja sig frá námi rennur út. Berist umsókn til okkar innan tveggja sólarhringa áður en námskeið hefst verður námskeiðsgjaldið gjaldfært strax og námsgjöld þar af leiðandi óafturkræf.Frestur til úrsagnar úr námskeiðinu er allt að 48 klukkustundum áður en námskeiðið hefst. Hafi skrifleg úrsögn ekki borist fyrir þann tíma, verða námsgjöld innheimt að fullu (sjá greiðsluskilmála SÍMEY) Ef þú vilt hætta við umsókn og koma í veg fyrir að námsgjöld verði innheimt, smelltu þá hér áður en fresturinn rennur út, fylltu út formið og sendu til okkar.

Heiti námskeiðs Dags Dagar Tími Staðsetning Verð Skráning
Pörun á kaffi og súkkulaði 15. mar. Sunnudagur 13:00-15:00 SÍMEY 19.900 kr. Skráning