Næringarfræði og ólkar þarfir

Flokkur: Velferðarsvið Akureyrarbæjar

 
Starfar þú í þjónustukjarna og vilt öðlast meira öryggi í að styðja við heilsu og næringu þinna skjólstæðinga?
 
Þetta hagnýta námskeið er hannað sérstaklega til að veita starfsfólki dýrmæta þekkingu og einföld verkfæri til að hvetja til heilbrigðara mataræðis og lífsstíls í daglegu starfi.
 
Farið verður yfir grundvöll næringar, hvernig megi mæta ólíkum þörfum hvers og eins og hvernig starfsfólk getur aðstoðað skjólstæðinga sem glíma við lífsstílssjúkdóma.
 
Á námskeiðinu verður fjallað um:
  • Heilsusamlegt líferni: Grunnurinn að hlutverki næringar og hvernig við hvetjum skjólstæðinga til góðra vanabreytinga.
  • Mataræði í hversdeginum: Mikilvægi reglulegra máltíða, næringarríkan mat, vökvun og skammtastærðir.
  • Lífsstílssjúkdóma: Sykursýki (tegund 2), blóðsykursstjórnun og hvernig matur hefur áhrif á líkamann.
  • Matarfíkn og áskoranir: Að skilja muninn á tilfinningalegri borðun og líkamlegu svangi, og hvernig megi skapa heilbrigðara umhverfi í kringum mat.
Námskeiðið styrkir starfsfólk í að lesa í ólíkar þarfir skjólstæðinga sinna og styðja þá við að bæta lífsgæði sín með næringu.
 
Leiðbeinandi: Marína Sigurgeirsdóttir
Tímasetning: 29. september kl 13:00-15:00
Staðsetning: SIMEY, Þórsstíg 4

 
Heiti námskeiðs Dags Dagar Tími Staðsetning Verð Skráning
Næringarfræði og ólkar þarfir 29. sep. Þriðjudagur 13:00-15:00 SIMEY, Þórsstíg 4 Skráning