MENNTASTOÐIR

Flokkur: Lengra nám

Verð fyrir fullt nám: 200.000* (með fyrirvara um breytingu á verðskrá fræðslusjóðs).

Verð pr. áfanga.

1-4 áfangar - 25.000 kr. pr. áfanga

5-6 áfangar - 100.000 kr.

 

Athugið að sótt er um allt námið. Verðinu verður breytt við innritun til samræmis við óskir umsækjenda.

Nám í Menntastoðum samanstendur af almennum bóklegum greinum á 2. þrepi. Námið er ætlað þeim sem stefna á nám við undirbúningsdeildir háskóla, þeim sem vilja ljúka framhaldsskóla eða þeim sem vilja efla hæfni sína í bóklegum greinum. Einnig má meta nám í menntastoðum til eininga í bóklegum greinum iðnnáms. Hægt er að taka staka áfanga í Menntastoðum.

 

Fyrirkomulag náms: 

Námið er byggt þannig upp að tveir áfangar eru kenndir í einu í fimm vikur í senn. Hver áfangi hefst með fjarfundi á laugardegi og í kjölfarið fer námið fram á netinu í vendikennslu. Athugið að mikilvægt er að mæta á fyrsta fjarfund svo að námið gangi vel fyrir sig. Allir fyrirlestrar eru teknir upp fyrirfram og aðgengilegir námsmönnum í gegnum netið.

Námsmenn hafa aðgengi að kennara í vinnustofum á mánudögum eða miðvikudögum  milli kl. 17:00 - 20:00 í gegnum netið. Þar geta nemendur fengið aðstoð og leiðsögn við gerð verkefna frá kennara. Þar fyrir utan er nemendum frjálst að nýta sér aðstöðuna í SÍMEY og hafa þar aðgengi að ráðgjöfum og verkefnastjórum.

Námsmat:

Námsárangur er metinn með símati í formi verkefna, ekki eru haldin eiginleg lokapróf í áföngunum.  

 

Eftirtaldar námsgreinar eru kenndar á haustönn 2024 (birt með fyrirvara um breytingar):

  • Námstækni - Fyrir þá sem taka allt námið.
  • Upplýsingatækni - Hefst 17. ágúst kl. 10. Aðgengi að kennara á mánudögum kl. 17:00 - 20:00 frá 19. ágúst til 9. september.
  • Gagnrýnin hugsun og siðfræði - Hefst 7. september kl. 10. Aðgengi að kennara á miðvikudögum kl. 17:00 - 20:00 frá 11. september til 9. október. 
  • Íslenska - Hefst 14. september kl. 10. Aðgengi að kennara á mánudögum kl. 17:00 - 20:00 frá 16. september til 14. október.
  • Stærðfræði - Hefst 12. október kl. 10. Aðgengi að kennara á miðvikudögum kl. 17:00 - 20:00 frá 16. október til 13. nóvember.
  • Danska - Hefst 19. október kl. 10. Aðgengi að kennara á mánudögum kl. 17:00 - 20:00 frá 21. október til 18. nóvember.
  • Enska - Hefst 16. nóvember kl. 10. Aðgengi að kennara á miðvikudögum kl. 17:00 - 20:00 frá 20. nóvember til 18. desember.

 

Sjá nánar námskeiðslýsingar og hæfniviðmið í námsskrá Fræðslumiðstöðvar atvinnulífsins.

 

Hafið samband við Helenu (helena@simey.is) eða Önnu Maríu (annamaria@simey.is) fyrir frekari upplýsingar um nám í Menntastoðum.

 

Námið hefst þann 17. ágúst 2024.

 

Vinsamlega athugið að námsgjöld eru óafturkræf eftir að frestur til að segja sig frá námi rennur út.
Frestur til úrsagnar úr lengri námsleiðum er 14 dagar frá dagsetningu umsóknar (sjá greiðsluskilmála SÍMEY).

Ef þú vilt hætta við umsókn smelltu þá hér, fylltu út formið og sendu til okkar.

Ekki gleyma að kanna möguleikana á styrkjum hjá stéttarfélögum ykkar og fræðslusjóðum!

Haustönn 2024