Þetta námskeið er aðeins ætlað starfsfólki Heilbrigðisstofnunar Norðurlands (HSN).
Aldraðir glíma gjarnan við fjölþættan heilsufarsvanda sem getur leitt til meðferðar með fjölda lyfja. Hætta á auka- og milliverkunum lyfja eykst við þetta auk þess sem hækkandi aldur hefur áhrif á frásog, dreifingu og útskilnað lyfja úr líkamanum. Á námskeiðinu verður fjallað um hvernig draga má úr hættu á aukaverkunum lyfja meðal hrumra aldraðra með því að nota einvörðungu nauðsynleg lyf, gefa góðar upplýsingar um lyf, gefa lyf í eins stuttan tíma og hægt er og síðast en ekki síst með reglulegu endurmati á lyfjameðferð.
Leiðbeinandi: Arna Rún Óskarsdóttir, öldrunarlæknir.
Heiti námskeiðs | Dags | Dagar | Tími | Staðsetning | Verð | Skráning |
---|