Nám í Leikskólaliða- og stuðningsfulltrúabrú er fyrir fullorðið fólk á vinnumarkaði með starfsreynslu í leik- og grunnskólum sem jafngildir að lágmarki fullu starfi í þrjú ár og þau sem hafa lokið 200 - 240 kennslustunda starfstengdum námskeiðum.
Nám fyrir leikskólaliða og stuðningsfulltrúa veitir þekkingu og færni til að starfa með börnum í námi og leik. Áhersla er lögð á uppeldisfræði, sálfræði, samskipti og listsköpun. Leikskólaliðar og stuðningsfulltrúar starfa við hlið annars fagfólks á leik- og grunnskólum.
Námið er samtals 106 - 111 framhaldsskólaeiningar sem kenndar eru á fjórum önnum.
Nemendur útskrifast sem leikskólaliðar og/eða stuðningsfulltrúar að námi loknu.
Hér má sjá áfanga og brautarlýsingu fyrir stuðningsfulltrúabrú
Hér má sjá áfanga og brautarlýsingu fyrir leikskólaliðabrú
Fyrirkomulag náms: Námið er byggt þannig upp að hver áfangi er kenndur í 5-6 vikur í senn og allt námið er kennt í fjarnámi með vendikennslu. Mikilvægt er að mæta (á fjarfundarbúnaði) í fyrsta tíma hvers áfanga til að fá allar upplýsingar um fyrirkomulag áfangans frá kennara. Nemendur fá sendar frekari upplýsingar um upphaf hvers áfanga í vikunni fyrir fyrsta tímann.
Nemendur hafa aðgengi að kennara einu sinni í viku í hverjum áfanga, í gegnum fjarfundarbúnað, þar sem þeir geta fengið aðstoð og leiðsögn frá kennaranum. Þar fyrir utan er nemendum frjálst að nýta sér aðstöðuna í SÍMEY og hafa þar aðgengi að námsráðgjafa og verkefnastjóra.
Námsmat: Námsárangur er metinn með símati, þ.e. nemandi skilar inn verkefnum sem metin eru til einkunna og er einkunn gefin í tölustöfum.
Fög kennd á haustönn 2026 (birt með fyrirvara um breytingar):
Fög kennd á vorönn 2027 (birt með fyrirvara um breytingar):
Verð: 57.850,- hver önn (með fyrirvara um breytingu á verðskrá fræðslusjóðs).
(Ath. gjöld verða ekki innheimt fyrr en í ágúst 2026).
Vinsamlega athugið að námsgjöld eru óafturkræf eftir að frestur til að segja sig frá námi rennur út.
Frestur til úrsagnar úr lengri námsleiðum er 14 dagar frá skráningu. Sjá greiðsluskilmála.
Smellið hér til að skrá ykkur úr námi.
Ekki gleyma að kanna möguleikana á styrkjum hjá stéttarfélögum ykkar og fræðslusjóðum!
Markhópur símenntunarmiðstöðva eru einstaklingar sem hafa litla formlega skólagöngu að baki, þ.e. hafa ekki lokið stúdentsprófi, iðnnámi eða sambærilegu námi. Einnig einstaklingar sem hafa lokið námi erlendis, sem ekki er viðurkennt á Íslandi.