Á þessu grunnnámskeiði í notkun á Inkscape og laserskurðarvél verður farið yfir forritið Inkscape, öryggisatriði og notkun á laserskurðarvél. Nemendur fá að takast á við mismunandi verkefni og öðlast reynslu í laserskurð.
Laserskurðar vélarnar sem Fab Lab Akureyri er með eru Epilog Helix Laser 60 og 40w vélar sem að geta skorið í gegnum allt að 9mm þykk efni (timbur, plexigler o.fl). Einnig er hægt að merkja í sterkari efni (gler og stein).
Á þessu námskeið verður kennt að merkja/skera í gler og stein. Vélin getur ekki skorið í gegnum þessi efni en hægt er að merkja myndir eða texta á þau.
Tími: Námskeiðið er 6 klst. Kennt mánudagana 21. og 28. mars kl 17:00-20:00
Leiðbeinandi: Jón Þór Sigurðsson, forstöðumaður Fab Lab Akureyri
Ekki gleyma að kanna möguleikana á styrkjum hjá stéttarfélögum ykkar og fræðslusjóðum!
| Heiti námskeiðs | Dags | Dagar | Tími | Staðsetning | Verð | Skráning |
|---|