Krefjandi samskipti

Flokkur: HSN

Þetta námskeið er aðeins ætlað starfsfólki Heilbrigðisstofnunar Norðurlands (HSN).

Námskeiðslýsing

Námskeiðið er ætlað starfsfólki sem starfar í fjölbreyttu og krefjandi umhverfi þar sem samskipti við skjólstæðinga og samstarfsfólk skipta lykilmáli. Farið verður yfir verkfæri til að takast á við erfið samskipti af fagmennsku og öryggi, auk þess sem lögð verður áhersla á ábyrgð hvers og eins í að móta jákvæða vinnustaðamenningu og öflugt teymi.

Markmið námskeiðs

Að loknu námskeiði skulu þátttakendur:

  • Þekkja leiðir til að bregðast við krefjandi samskiptum við skjólstæðinga af öryggi og fagmennsku.
  • Átta sig betur á lagalegum og faglegum mörkum í samskiptum.
  • Geta metið hvenær leita eigi stuðnings hjá samstarfsfólki eða stjórnendum.
  • Skilja mikilvægi teymisvinnu í lausn erfiðra mála.
  • Þekkja áhrif eigin hegðunar á vinnustaðamenningu og líðan annarra.
  • Sýna aukinn skilning og virðingu fyrir fjölbreyttum hlutverkum innan stofnunarinnar.
  • Fá verkfæri til að stuðla að jákvæðum samskiptum, trausti og samvinnu.

Leiðbeinandi Vanda Sigurgeirsdóttir frá KVAN

Tímasetning: 19. nóvember kl 13:30-16:00

Heiti námskeiðs Dags Dagar Tími Staðsetning Verð Skráning
Krefjandi samskipti 19. nóv. Fimmtudagur 13:30-16:00 Vefnámskeið Skráning