Einstaklingsnámskeið þar sem þú æfir þig eða fræðist um tækni, forrit, tæki og græjur að eigin vali. Það getur verið snjallsíminn þinn, tölva eða spjaldtölva, myndavél eða aðrar græjur. Á námskeiðinu er leitast við að finna styrkleika og áhugasvið og efla það með tilkomu tækninnar. Að auka færni nemenda til að nýta tæknina sér til dægrastyttingar og leita leiða til bættra samskipta.
Leiðbeinandi: Vilberg Helgason
Fjöldi skipta: 8 skipti, ein klst. í senn
Verð: 20.000 kr.
Við bendum umsækjendum á að athuga möguleika á styrkveitingum hjá stéttarfélagi sínu eða hjá Akureyrarbæ, sjá upplýsingar hér.
Frekari upplýsingar er hægt að fá hjá Jónínu verkefnastjóra náms fólks með fötlun, jonina@simey.is
| Heiti námskeiðs | Dags | Dagar | Tími | Staðsetning | Verð | Skráning |
|---|---|---|---|---|---|---|
| Tækni | 21. sep. - 01. des. | Ákveðið í samráði við kennara og nemendur | SÍMEY | 20.000 kr. | Skráning |