Grunnatriði hjóla og hjólreiða

Flokkur: námskeið

Langar þig að fræðast meira um hjólið þitt og um hjólreiðar almennt?

Það eru mörg atriði sem gott og nauðsynlegt er að kunna í hjólreiðunum, sama á hvernig hjóli þú ert. Markmið námskeiðisins er að hjálpa þátttakendum að velja hjól, nota hjól, stilla hjól, hirða um hjól,  o.fl. Farið verður vítt og breytt um svið hjólreiða þannig að þátttakendur eigi auðveldara með að taka næsta skref í hjólamennsku. 

Meðal þess sem farið verður yfir á námskeiðinu er:

  • Tegundir hjóla / hjólreiða
  • Hvað ber að hafa í huga við val á hjóli
  • Reikna upp grunn stillingu á hjóli m.v. líkamsmælingar
  • Staða líkamans á hjólinu og líkamsbeiting í mismunadi aðstæðum
  • Umferðarreglur hjólreiða og hjólreiðar í hóp
  • Notkun og uppbygging á gírum og bremsum
  • Búnaður tengdur hjólreiðum
  • Skipulagning hjólaleiða
  • Reglulegt viðhald á hjóli

 Námskeið sem hentar vel fyrir alla sem hjóla. Það gefur yfirsýn yfir heim hjólreiða og það eru ólík atriði og fræði sem þátttakendur geta nýtt sér úr námskeiðinu til að bæta færni sína og þekkingu á hjólreiðum.

Leiðbeinandi: Hjólreiðafélagið Drangey sér um kennslu.

 

*Stéttarfélögin Eining Iðja, Kjölur og Sameyki greiða námskeiðsgjaldið að fullu fyrir sína félagsmenn. Athugið að námskeiðin eru öllum opin og minnum við aðra en félagsmenn þessara félaga á að kanna rétt sinn hjá sínu stéttarfélagi.

 

Heiti námskeiðs Dags Dagar Tími Staðsetning Verð