Athugið að einstaklingar í sjálfstæðri búsetu hafa forgang á þetta námskeið.
Námskeiðið er kennt inni á heimili þátttakenda og er sniðið eftir námsþörf og áhuga hvers og eins.
Þátttakendur ákveða í samráði við leiðbeinanda hvað þau vilja leggja áherslu á, svo sem innkaup, matreiðslu, þrif, bókhaldsgerð o.flr.
Lögð er áhersla á þátttöku, virkni og frumkvæði til að auka sjálfstæði og ákvörðunartöku á eigin heimili.
Tímasetningar eru ákveðnar í samráði milli leiðbeinanda og þátttakenda.
Leiðbeinandi: Kristín Linda Helgadóttir
Fjöldi skipta: 6 skipti, 2 klst. í senn
Verð: 30.000 kr.
Við bendum umsækjendum á að athuga möguleika á styrkveitingum hjá stéttarfélagi sínu eða hjá Akureyrarbæ, sjá upplýsingar hér.
| Heiti námskeiðs | Dags | Dagar | Tími | Staðsetning | Verð | Skráning |
|---|---|---|---|---|---|---|
| Hagnýtt heimilishald | 01. feb. - 01. jún. | Ákveðið í samráði kennara og þátttakenda | Ákveðið í samráði kennara og þátttakenda | Heimili þátttakenda | 30.000 kr. | Skráning |