Jurtasmyrsl og krem á náttúrulegan hátt - staðkennt

Flokkur: námskeið

Lærðu að búa til þín eigin smyrsl og krem, einnig að búa til baðsalt og skrúbb.
Þú lærir hvernig á búa til smyrsl með einföldum hráefnum og búnaði einnig að nota íslenska jurtir.
Allt hráefni á staðnum. Námskeiðsgögn ásamt uppskriftum innifalið. Allir fá prufu með sér heim.

Leiðbeinandi: Ásta Búadóttir, matreiðslumeistari, grunnskólakennari og handverkskona. 

Athugið að aðilar í stéttarfélögunum Eining Iðja, Kjölur og Sameyki sækja námskeiðið sér að kostnaðarlausu. 

Námskeiðin eru öllum opin og minnum við aðila í öðrum stéttarfélögum að kanna rétt sinn hjá sínu félagi.

Vinsamlega athugið að námsgjöld eru óafturkræf eftir að frestur til að segja sig frá námi rennur út. Berist umsókn til okkar innan tveggja sólarhringa áður en námskeið hefst verður námskeiðsgjaldið gjaldfært strax og námsgjöld þar af leiðandi óafturkræf.

Frestur til úrsagnar úr námskeiðinu er allt að 48 klukkustundum áður en námskeiðið hefst.  

Hafi skrifleg úrsögn ekki borist fyrir þann tíma, verða námsgjöld innheimt að fullu (sjá greiðsluskilmála SÍMEY) 

Ef þú vilt hætta við umsókn og koma í veg fyrir að námsgjöld verði innheimt, smelltu þá hér áður en fresturinn rennur út, fylltu út formið og sendu til okkar.

Heiti námskeiðs Dags Dagar Tími Staðsetning Verð