Gervigreind í starfi: Þinn nýji stafræni aðstoðarmaður

Flokkur: námskeið

Hvernig væri að eignast aðstoðarmann sem kvartar aldrei, vinnur á ljóshraða og er tilbúinn með hugmyndir allan sólarhringinn? Á þessu námskeiði lærum við að virkja gervigreindina til að létta undir í daglegum verkefnum. Við förum yfir hvernig tæknin getur sparað þér tíma við skrif, greiningar, hugmyndavinnu og skipulag.

Á námskeiðinu lærir þú:

  • Að láta gervigreindina skrifa og lagfæra texta (tölvupósta, skýrslur, fundargerðir).
  • Að nota gervigreind sem hugmyndasmið og sparring-félaga.
  • Hagnýt tól sem nýtast strax á morgun til að minnka álag.
  • Siðferðislegu hliðarnar – hvað má og hvað má ekki?

Fyrir hverja? Alla sem vinna við tölvu og vilja fá tíma sinn til baka.

Leiðbeinendur: Bergmann Guðmundsson og Hans Rúnar Snorrason

Hvar og hvenær: 9. apríl klukkan 17:00-19:00

vefnámskeið

Verð: 19.900 kr

Athugið að aðilar í stéttarfélögunum Eining Iðja, Kjölur og Sameyki ásamt stéttarfélögum sem eru aðilar að Iðunni sækja námskeiðið sér að kostnaðarlausu. Námskeiðin eru öllum opin og minnum við aðila í öðrum stéttarfélögum að kanna rétt sinn hjá sínu félagi.

Vinsamlega athugið að námsgjöld eru óafturkræf eftir að frestur til að segja sig frá námi rennur út. Berist umsókn til okkar innan tveggja sólarhringa áður en námskeið hefst verður námskeiðsgjaldið gjaldfært strax og námsgjöld þar af leiðandi óafturkræf.Frestur til úrsagnar úr námskeiðinu er allt að 48 klukkustundum áður en námskeiðið hefst. Hafi skrifleg úrsögn ekki borist fyrir þann tíma, verða námsgjöld innheimt að fullu (sjá greiðsluskilmála SÍMEY) Ef þú vilt hætta við umsókn og koma í veg fyrir að námsgjöld verði innheimt, smelltu þá hér áður en fresturinn rennur út, fylltu út formið og sendu til okkar.

Heiti námskeiðs Dags Dagar Tími Staðsetning Verð Skráning
Gervigreind í starfi 09. apr. fimmtudagur 17:00-19:00 vefnámskeið 19.900 kr. Skráning